-0.5 C
Selfoss

Ivan Paponja spilar með Selfossi í sumar

Vinsælast

Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við Ivan Paponja um að leika með liðinu á komandi tímabili.

Ivan er 28 ára Króati sem kom hingað til lands árið 2023 en frá þeim tíma hefur hann leikið með Sindra og á tímabili undir stjórn Óla Stefáns Flóventssonar, núverandi þjálfara Selfoss. Ivan er afar fjölhæfur leikmaður sem getur svo gott sem leyst flestar stöður á vellinum en þó má teljast ólíklegt að við sjáum hann á milli stanganna í sumar.

„Ivan er öflugur leikmaður sem hefur síðustu þrjú ár spilað með Sindra þar sem hann hefur verið fyrirliði og einn þeirra allra besti leikmaður. Ivan er tæknilega góður, fljótur og kröftugur leikmaður sem getur leyst nánast allar stöður á vellinum,” segir Óli Stefán þjálfari Selfoss.

Nýjar fréttir