5.1 C
Selfoss

Hilmar Guðlaugsson ráðinn afreksþjálfari kvenna hjá handknattleiksdeild Selfoss

Vinsælast

Hilmar Guðlaugsson hefur verið ráðinn afreksþjálfari kvenna hjá handknattleiksdeild Selfoss.

Hilmar mun koma inn í þjálfarateymi meistaraflokks kvenna með Eyþóri Lárussyni, auk þess að leiða þjálfarateymi 3. og 4. flokks kvenna.

Hilmar hefur þjálfað handknattleik í tæp þrjátíu ár og býr yfir mikilli og fjölbreyttri reynslu. Hann hefur þjálfað bæði meistaraflokka og yngri flokka, auk þess sem hann hefur komið að þjálfun unglingalandsliða Íslands.

Hilmar kemur til okkar frá HK, þar sem hann stýrði meistaraflokki kvenna upp í Olísdeildina á nýliðnu tímabili. Þar áður starfaði hann sem þjálfari í Noregi í sex ár.

Mikil tilhlökkun er hjá handknattleiksdeildinni með komu Hilmars og væntum við mikils af hans störfum.

Nýjar fréttir