Bikarkeppni 15 ára og yngri fór fram í Kaplakrika sunnudaginn 8. mars. Bæði stúlkna og pilta lið HSK/Selfoss urðu í 6 sæti í sínum flokki og samanlagt urðu þau í 5 sæti heildarkeppninni. Keppendur stóðu sig með stakri prýði og til fyrirmyndar inná vellinum sem utan.
Magnea Furuhjelm Magnúsdóttir var bikarmeistari í 60 m. grindarhlaupi (því miður klikkaði tímatakan í þessu frábæra hlaupi hennar en aðeins var raðað í sæti), en hún gerði sér lítið fyrir og vann langstökkið einig með stökk upp á 5,18m. Ásta Kristín Ólafsdóttir var svo í 3. sæti í kúluvarpi með kast upp á 10,10 m. Magnús Tryggvi Birgisson varð svo í 2. sæti í langstökki með stökk upp á 5,39 m og í svo varð hann í 3. sæti kúluvarpi með 11,86 m.



