Eva María Baldursdóttir sigraði glæsilega í hástökki er hún tók þátt í Penn Classic í Fíladelfíu um helgina. Eva María, sem keppir fyrir háskólann í Pittsburgh, stökk til sigurs er hún stökk yfir 1.80m og setti nýtt mótsmet í leiðinni. Eva María jafnaði sinn besta árangur innanhúss en hún hefur hæst stokkið 1.84m utanhúss. Hún átti síðan mjög góðar tilraunir við næstu hæð sem var 1.84m. Þetta er annar sigurinn í röð hjá Evu Maríu á þessu innanhússtímabili en hún vann Penn State National Open í lok janúar með 1,79 metra stökki. Næst keppir Eva María eftir 2 vikur á ACC championships og freistar þess að bæta sig á því móti og ná árangri til að komast inn á lokamótið innnahúss. 16 bestu hástökkvarar úr öllum háskólum bandaríkjanna komast inn á lokamótið.

