2.5 C
Selfoss

14 keppendur frá Umf. Heklu á Stórmóti ÍR

Vinsælast

Ungmennafélagið Hekla átti 14 keppendur á stórmóti ÍR sem fór fram helgina 7.-8. Febrúar.

Talsverð gróska hefur verið í frjálsíþróttastarfi félagsins síðastliðið eitt og hálft ár og er langt síðan svo stór hópur keppenda hefur mætt á stórmót frá félaginu.

Keppendur Umf. Heklu stóðu sig vel inn á vellinum en félagið átti 8 keppendur í flokkum 8 ára og yngri sem kepptu í fjölþraut og 9-10 ára sem kepptu í fjórþraut sem að samanstendur af 60m, langstökki, kúluvarpi og 400m. Ekki er verðlaunað sérstaklega fyrir árangur í einstaka greinum í þessum aldursflokki en haldið er utan um úrslit og árangur. Helst ber þar að nefna að Þröstur Freyr Bjarkason átti annað lengsta kastið í kúluvarpi, kastaði 6,57m. Um er að ræða keppni með 130 keppendum svo kast Þrastar er frábær árangur.

Í eldri flokkum mættu keppendur Umf. Heklu einnig sterkir til leiks.

Vikar Reyr Víðisson keppti í kúluvarpi 18-19 ára pilta þar sem að hann bætti sig og varpaði kúlunni 11.84m og lenti í 2.sæti.

Stephanie Ósk Ingvarsdóttir keppti í 60m hlaupi og hástökki. Í 60m komst hún í úrslit eftir að hafa hlaupið á tímanum 8.72 sek í undanrásum. Í úrslitum hljóp hún svo á 8.61 sek sem er stórbæting en hún átti 8.67 sek fyrir. Dugði tíminn til 9.sætis.

Í hástökki stökk Stephanie Ósk 1.58m og átti svo góðar tilraunir við 1.61m sem hefði verið bæting en stökk upp á 1.58m dugði eftir sem áður til silfurverðlauna.

Veigar Þór Víðisson keppti í þrístökki karla. Þar stökk hann til sigurs með stökki upp á 12.10m sem er jafnframt bæting og lágmark inn á Meistaramót Íslands sem fer fram um mánaðamótin.

Keppnistímabilið er að verða hálfnað hjá iðkendum Umf.Heklu en framundan er meistaramót fullorðinna, Bikarkeppnir FRÍ fullorðinna og 15 ára og yngri, Héraðsmót HSK og ýmis minni mót og innanfélagsmót.

Nýjar fréttir