3.4 C
Selfoss

HELLFOSS tónlistarhátíðin með 666 ára samning

Vinsælast

Um helgina fer ný tónlistarhátíð, HELLFOSS, fram í fyrsta sinn í miðbæ Selfoss. Hátíðin fer fram á tónleikastaðnum Sviðinu og Miðbar og markar nýjan kafla í tónlistarlífi bæjarins, með áherslu á þyngri tóna og kraftmikla upplifun.

Í aðdraganda hátíðarinnar undirrituðu Davíð Lúther Sigurðarson, einn af eigendum tónleika staðarins Sviðsins í miðbæ Selfoss, og Rúnar Hroði samning til hvorki meira né minna en 666 ára um að Hellfoss verði haldin áfram í miðbæ Selfoss. Samningurinn er auðvitað með glotti í augnkróknum, en undirstrikar þó skýran vilja beggja aðila til langtíma samstarfs.

Davíð Lúther segir hátíðina afar spennandi viðbót við viðburðaflóru bæjarins og hvetur aðra viðburðarhaldara að horfa til okkar sem viðburðarstaður, hér viljum við djazz og blúshátíð, countryhátíð og rapphátíð, þannig að við erum opin fyrir samstarfi við gott fólk með reynslu í viðburðarhaldi. 

„Þetta er ótrúlega skemmtilegt verkefni og frábært að fá Hellfoss hingað árlega. Ég hlakka til að sjá hvernig hátíðin þróast á næstu árum, þó ég búist nú ekki við að mæta á síðustu tónleikana þegar samningurinn rennur sitt skeið,“ segir Davíð Lúther með bros á vör. 

Rúnar Hroði segist mjög ánægður með aðstöðuna og samstarfið sem hafi verið til staðar allt frá fyrsta fundi síðasta sumar.

„Samstarfið hefur gengið ótrúlega vel frá upphafi og aðstaðan hér í miðbæ Selfoss er til fyrirmyndar. Það að HELLFOSS 2026 sé uppselt strax fyrsta árið er algjörlega magnað og kom okkur virkilega á óvart,“ segir Rúnar.

Hellfoss hefst í dag klukkan 16:00 og stendur fram á miðnætti á laugardagskvöld. Búist er við mikilli stemningu í miðbæ Selfoss alla helgina þegar þungir tónar, kraftur og samheldni tónlistarfólks og gesta taka yfir bæinn.

Nýjar fréttir