2.8 C
Selfoss

Vér Haukdælir!

Vinsælast

Þessi litla grein er undanfari þess að ég tek þátt í helgistund og samtali um föstuna, trúna og lífið í „Litlu svörtu kirkjunni” á Mosfelli í Grímsnesi miðvikudaginn 18. mars nk. kl. 19.30 en þar er prestssetur Skálholtsprestakalls.

Þrír staðir eru okkur Mosfellingum/Haukdælum kærastir, Mosfell í Grímsnesi, Skálholt og Haukadalur í Biskupstungum. Nú hefur sóknarpresturinn í Skálholti, Kristín Þórunn Tómasdóttir, efnt til kvöldviðburða í hinni gömlu kirkju að Mosfelli þar sem margir koma að með rödd sína. Árnesingar vita að Mosfellingar eða Haukdælir eru komnir af landnámshjónunum Ketilbirni gamla Ketilssyni og Helgu Þórðardóttur en þau voru kynsæl og meðal afkomenda þeirra var ættbogi fyrstu menntamanna Íslendinga.

Þar á meðal var Ísleifur Gissurarson, fyrsti biskupinn í Skálholti, kona hans var Dalla Þorvaldsdóttir og synir þeirra voru þeir Þorvaldur prestur í Hraungerði, Gissur biskup í Skálholti eftir föður sínum og Teitur prestur í Haukadal, fóstri Ara fróða.

Þekktastur allra Haukdæla var Gissur Þorvaldsson Jarl. Haukdælir fóru með öll völd í Árnesýslu um langa hríð og af þeim er komin mikil ætt sem enn setur svip sinn á Árnesþing og landið allt. Fornu nöfnin hafa verið nöfn afkomenda kynslóð fram af kynslóð; þar eru nöfnin: Ketill, Gissur, Þorvaldur, Björn, Ísleifur, Teitur, Helga, Dalla, Þorbjörg o.fl. ríkjandi.

Skálholt var gjöf til þjóðarinnar gefið af Gissuri Ísleifssyni með þeim skilyrðum að þar skyldi vera biskupssetur meðan kristin trú héldist í landinu.

Þessari ætt okkar mun ég gera skil og sögu Skálholts og Haukdælanna. Enn fremur trú minni og kynnum af fólkinu í héraðinu okkar og kristnitökunni á Þingvöllum árið eitt þúsund og hvers vegna var kristni lögleidd.

Ég minni á að eftirtalið fólk er af ætt Haukdælanna: Sigurður Greipsson, Egill Thor-arensen, Björn Sigurðsson í Úthlíð, Ágúst Þorvaldsson á Brúnastöðum, Vigdís Finnbogadóttir, Davíð Oddsson, Hafsteinn Þorvaldsson, Sigfús Kristinsson, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Kristrún Frostadóttir, Bjarni Harðarson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Kári Stefánsson, Kristín Þórunn Tómasdóttir prestur á Mosfelli.

Guðni Ágústsson

Nýjar fréttir