-8.3 C
Selfoss

Védís Huld knapi íþróttamaður Ölfuss 2025

Vinsælast

Védís Huld Sigurðardóttir var um helgina útnefnd Íþróttamaður Ölfuss árið 2025. Védís Huld hefur keppt í hestaíþróttum frá unga aldri og er hún bæði margverðlaunuð og afar reynd í sinni íþrótt. Hún hefur skipað sér í fremstu röð ungra knapa í íslenskum hestaíþróttum og stendur jafnan fyrir sínu með mikilli fagmennsku og yfirvegun.

Hæfileikar hennar endurspeglast í þeirri ástríðu sem hún sýnir íþróttinni og er ánægjulegt að sjá einstakt samspil hennar og hestanna sem hún keppir á. Védís Huld átti frábært keppnisár 2025 og var Heimsmeistaratitill hennar klárlega stærsti sigur ársins en auk þess sigraði hún með liði sínu í meistaradeildinni og hlaut Íslandsmeistaratitla í flokki ungmenna.

Nýjar fréttir