Rúmlega 30 nemendur af fyrsta og öðru ári Fjölbrautaskólans á Suðurlandi og úr efstu bekkjum Sunnulækjarskóla og Vallaskóla létu appelsínugular veðurviðvaranir ekki á sig fá og mættu á ungmennaþing Barnaheilla þann 26. mars. Þetta er fimmta og næstsíðasta þing samtakanna með ungu fólki vítt og breytt um landið.
„Ungmennin sem mættu í vonda veðrinu í Fjölbrautaskóla Suðurlands voru hreint út sagt stórkostleg. Það var virkilega gaman og gagnlegt að heyra þeirra sýn á þetta mikilvæga málefni. Mörg þeirra töluðu um hversu mikið þau hefðu lært af því að eiga þetta samtal og hversu skemmtilegt þeim fannst að taka þátt í þinginu,“ segir Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra ofbeldisforvarna og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum. „Öll segjast þau vilja meiri fræðslu og það rímar við það sem við höfum heyrt annars staðar á landinu. Þetta segir okkur bara eitt – að við þurfum að sinna forvörnum mun betur og auka verulega við kynningu á þeim úrræðum sem ungt fólk getur leitað í.”
Þátttakendum var skipt niður á átta borð með mismunandi umræðuefni sem sneri að ofbeldi í nánum samböndum unglinga. Kennarar og starfsfólk sem vinnur að ungmennastarfi í skólunum tóku að sér að stýra borðumræðum um viðfangsefnin í litlum hópum.

Hóparnir færðu sig svo reglulega á milli borða til að ræða málefnið út frá ýmsum hliðum og læra að þekkja muninn á heilbrigðum og óheilbrigðum samskiptum, þekkja birtingarmyndir ofbeldis, hvert bæði þolendur og gerendur geta leitað eftir aðstoð, hvaða úrræði eru í boði, við hverja er best að tala og eins um mikilvægi fræðslu og forvarna eins og Barnaheill standa að.
Ungmennin voru sér og sínum skólum til mikillar fyrirmyndar og tóku virkan þátt í samtalinu. Þau kölluðu eftir meiri fræðslu og töldu að stjórnvöld ættu að gera meira í því að auka umræðu og efla forvarnir í þessum málaflokki.
Ungmennaþinginu lauk svo með veislu þar sem þátttakendum var boðið upp á pizzur eftir góðar umræður. Allir fengu svo hleðslubanka og margnota taupoka að kveðjugjöf frá Barnaheillum.
Barnaheill fengu styrk frá dómsmálaráðuneytinu til að halda ungmennaþing á sex stöðum á landinu á næstu vikum. Fyrstu þingin voru haldin á Suðurnesjum, Hafnarfirði, Akureyri og Egilsstöðum og það síðasta verður haldið 8. apríl á Ísafirði.
Niðurstöður af þingunum öllum verða sendar til þátttakenda, skólayfirvalda, lögreglu og sveitarstjórnarfólks á vordögum, með von um að þær nýtist til að byggja upp enn betra forvarnarstarf og viðbrögð við ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Þá verða niðurstöðurnar kynntar á sérstöku málþingi Barnaheilla sem haldið verður 29. apríl, þar sem fagaðilum, stjórnvöldum og fulltrúum af ungmennaþingunum verður boðið að taka þátt í umræðum.

