-0.2 C
Selfoss

Styrktarkvöld Sigurhæða

Vinsælast

Fimmtudagskvöldið 12. mars næstkomandi verða haldnir styrktartónleikar á Hótel Selfossi fyrir Sigurhæðir. Húsið opnar klukkan 19:00 og hefjast tónleikarnir klukkan 20:00.

Hugmyndin að tónleikunum kviknaði síðasta sumar og eru þeir haldnir í tilefni af 5 ára afmæli Sigurhæða, sem er 20. mars. Tilgangur tónleikanna er annarsvegar að vekja athygli á Sigurhæðum og hinsvegar að safna fé fyrir áframhaldandi starfsemi. Sigurhæðir er fyrsta og eina úrræðið fyrir  þolendur kynbundins ofbeldis á Suðurlandi á Suðurlandi og er það ætlað konum 18 ára og eldri. Fimm meðferðaraðilar starfa hjá Sigurhæðum og er starfsemi þrjá daga í viku. Fjórar þolendamiðstöðvar eru á landinu og eru Sigurhæðir eina stöðin á Suðurlandi.

Í haust var fengin inn viðburðastjóri, Ingveldur Gröndal, til að halda utan um skipulagningu kvöldsins í samstarfi við Soroptimistaklúbbinn. Soroptimistaklúbbur Suðurlands sér um tónleikana og er markmið viðburðarins að safna fjármunum til stuðnings mikilvægu og samfélagslega þýðingarmiklu starfi Sigurhæða. Fyrir tónleikana verður svokallaður „pop-up“ markaður þar sem fyrirtæki selja og auglýsa sínar vörur ásamt því að gefa vinninga í happdrætti. Fyrirtækin sem taka þátt eru flestöll með tengingar við Suðurlandið. Dæmi um fyrirtæki og félög sem taka þátt eru Vilma Home, Ey Collection, Húm studio, Bjart art & skart, Daley kerti, Hotel Selfoss, Tilefni.is, og Myndistarfélag Suðurlands.

Við skorum að sjálfsögðu á fyrirtæki á Suðurlandi til að styðja við þetta þarfa og mikilvæga starf og bendum á að hægt er að styrkja verkefnið með því að leggja inn á Sigurhæðir í gegnum heimasíðuna.

Á tónleikunum mun fjöldinn allur af tónlistarfólki koma fram og gefa vinnu sína en það á það sameiginlegt að vera með tengingu við Suðurland á einn eða annan hátt; Magnús Kjartan, LayLow, Aldís Elva & Heiðar Óli, Jórukórinn og Una Torfa. Einn fremsti fyrirlesari landsins og einn af eigendum Kvan, Anna Steinsen, mun veislustýra kvöldinu.

Nýlega varð Sigurhæðir sjálfseignarstofnun. Reksturinn er því kominn úr höndum Soroptimistaklúbbs Suðurlands sem stofnaði Sigurhæðir en Soroptimistaklúbbskonur eru þó áfram sjálfboðar á vakt þegar starfsemi er í húsinu.

„Alveg frá upphafi hefur þörfin sýnt sig en um 400-450 konur hafa nýtt sér þjónustu Sigurhæða síðan þær hófu starfsemi sína. Sigurhæðir þjónusta svæðið allt austur á Höfn og til Vestmannaeyja og er starfsemin eingöngu rekin á styrkjum. Það er leiðinlegt að þurfa endalaust að væla út peninga frá hinu opinbera til að halda starfseminni gangandi,“ segir Anna Björg Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sigurhæða.

Fimm meðferðaraðilar starfa hjá Sigurhæðum og er starfsemi þrjá daga í viku. Fjórar þolendamiðstöðvar eru á landinu og eru Sigurhæðir eina stöðin á Suðurlandi.

Sigurhæðir Fagurgerði 2 Selfossi. Mynd: Aðsend.

Nýjar fréttir