2.8 C
Selfoss

Söfnuðu 855.000 krónum til styrktar Barna með krabbamein

Vinsælast

Hin árlega Góðgerðarvika í Fjölbrautaskóla Suðurlands fór fram alla síðustu viku. Að þessu sinni fór allur ágóði góðgerðarvikunnar til Barna með krabbamein. Alls söfnuðust 855.000 kr. en aldrei hefur en aldrei hefur safnast eins há upphæð á Góðgerðarviku FSu.

Nemendafélag skólans hefur staðið fyrir vikunni og hafa nemendur ásamt starfsfólki tekið virkan þátt í fjölbreyttum fjáröflunarverkefnum. Vöfflu- og pizzusala var á sínum stað og nemendur tóku þátt í fjölbreyttum áskorunum.

Meðal annars hjóluðu nemendur frá Hveragerði í skólann, áhrifavöldum var boðið að koma í skólann og keppa við nemendur í fótbolta og eftir vikuna eru kennarar og nemendur ýmist með aflitaðar augabrúnir, bleikt og blátt hár. Ákveðnum fjárhæðum þurfti að safna til að virkja hverja áskorun og þannig hvatti söfnunin nemendur og aðra til að leggja sitt af mörkum.

Í ár voru áskoranirnar einnig færðar út í samfélagið. Kjartan Björnsson, þekktur stuðningsmaður Arsenal, var meðal þeirra sem fengu áskorun, en eftir að söfnunin náði upp í 520.000 kr. þurfti Kjartan að klæðast treyju erkióvinar síns, Liverpool, í heilan dag.

„Vikan er búin að ganga virkilega vel, bæði nemendur og starfsfólk hafa tekið þátt í ýmsum áskorunum alla vikuna. Þetta er virkilega skemmtileg vika sem lyftir andanum í skólanum,“ segir Ingunn Helgadóttir, félags- og forvarnarfulltrúi.

Nýjar fréttir