Fimmtudaginn næstkomandi rennur upp gríðarlega stór dagur í starfi sveitarinnar og ekki síður hjá Brunavarnir Árnessýslu og Grímsnes- og Grafningshreppur þegar skóflustunga verður tekin að nýrri björgunarmiðstöð á Borg sem mun hýsa Hjálparsveitina Tintron og Brunavarnir Árnessýslu.
Um er að ræða samvinnuverkefni þessara þriggja aðila og hefur verið fundað mikið og reglulega síðan í haust með ýmsum aðilum sem koma að verkefninu.
Verkefnið er mjög svo þarft þar sem starf sveitarinnar hefur fyrir nokkru síðan sprengt utan af sér núverandi húsnæði og einnig er með þessu að rísa fyrsta slökkvistöðin á Borg sem tryggir skjótara og meira viðbragð fyrir sveitarfélagið okkar en verið hefur.
Björgunarmiðstöðin verður í heildina 1135 fermetrar og skiptist þannig að Tintron verður í 60% af húsinu og Brunavarnir Árnessýslu í 40%.
Sveitin hefur átt í góðu og farsælu samstarfi með BÁ síðustu árin þar sem við höfum æft saman, aðstoðað hvert annað í útköllum og fengið kynningu í notkun slökkvitækja hjá þeim fyrir flugeldasölu á hverju ári svo að við gætum tæplega fengið betri nágranna.
Verkefnið er stórt og krefjandi fyrir ekki stærri sveit en okkar en við viljum byggja til framtíðar með það í huga að Tintron geti haldið áfram að eflast og vaxa í takt við starf sveitarinnar og stækkun samfélagsins í Grímsnes og Grafningshrepp heldur en að byggja aðeins utan um núverandi starf sveitarinnar og vera fljótt komin á sama stað og nú hvað húsnæði varðar.
Eftir skóflustunguna verður boðið upp á kaffiveitingar í félagsheimilinu en þar verður einnig í tilefni dagsins skrifað undir endurnýjaðan samning milli Tintron og sveitarfélagsins ásamt því að undirrituð verður viljayfirlýsing milli sömu aðila um kaup og sölu á núverandi húsnæði sveitarinnar að Hraunbraut 2 á Borg og hluta Tintron í nýrri björgunarmiðstöð.

