-8.3 C
Selfoss

Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára

Vinsælast

Það er viðburðarríkt ár fram undan í sögu Selfosssóknar. Á árinu verður þess minnst að 70 ár eru frá vígslu Selfosskirkju og 80 ár  frá stofnun kirkjukórsins. Af því tilefni verður dagskrá alla sunnudaga í mars  sem endar á hátíðarmessu á pálmasunnudag 29. mars n.k.kl.2.00. Kirkjukórinn verður með mjög fjölbreytta dagskrá alla sunnudaga í mars þar sem gamlir og nýir söngmenn koma fram ásamt ungu söngfólk. Á pálmasunnudag kl. 2.00 verður hátíðarmessa þar sem  m.a. Biskup Íslands, sr. Guðrún Karls Helgudóttir og prófastur Suðurprófastsdæmi sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson verða gestir okkar. Auglýst verður nánar þegar nær dregur.

Aðalsafnaðarfundur

Fram undan er aðalsafnaðarfundur Selfosssóknar, verður hann haldinn miðvikudaginn 18. febrúar kl. 17.00 í safnaðarheimilinu. Samkvæmt venju fara fram almenn aðalfundarstörf. Að þessu sinni verður ekki um kosningu að ræða. Af tilefni 70 ára afmælis kirkjunnar verður lögð fram tillaga um heimild til stjórnar um áframhaldandi hugmyndavinnu að stækkun kirkjunnar. En nokkur undirbúningsvinna hefur átt sér stað, stefnt er að teikningar liggja frammi  Er hér verið að horfa til  framtíðar í okkar vaxandi byggðarlagi. Eru sóknarbörn og aðrir áhugasamir hvattir til að mæta á aðalsafnaðarfundinn.

Björn Ingi Gíslason formaður sóknarnefndar

Nýjar fréttir