Sandra Lind Þorsteinsdóttir, söngkona, og Karin Viktoria Jakobsson, píanóleikari, sækja Ísland heim með stuttu tónleikaferðalagi, en þær eru báðar búsettar í Kaupmannahafnarborg. Þær verða með tónleika í Skálholtskirkju laugardaginn þann 28. febrúar, þar sem þær munu flytja grísk þjóðlög í útsetningum M. Ravel, þrjú ljóð eftir ljóðskáldið Edith Sitwell í tónum eftir W. Walton, norræna tónlist úr ýmsum áttum – Íslandi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi, auk undurfagra ljóðaflokksins Mädchenblumen eftir R. Strauss. Tónleikarnir hefjast kl 16:00 og eru um klukkustund að lengd.
Aðgangseyrir er 2500 kr og ekki er tekið við greiðslukortum.

