3.9 C
Selfoss

Rjómalagað kjúklingapasta með sólþurrkuðum tómötum

Vinsælast

Eydís Lilja Einarsdóttir er sunnlenski matgæðingur vikunnar.

Ég vil þakka fyrir áskorunina og heiðurinn að vera valin sem matgæðingur vikunnar!

Ég ætla að sýna ykkur einfalt og mjög gómsætt rjómalagað kjúklingapasta með sólþurrkuðum tómötum sem hefur slegið í gegn í hvert sinn sem ég hef eldað það.

Uppskriftin er afar sveigjanleg og mikið mælt með hjartanu. Hægt er að bæta við öðrum hráefnum, t.d. grænmeti eftir smekk.

Hráefni:

  • 4 kjúklingabringur
  • ¼ laukur
  • 2-3 hvítlauksrif
  • Hvitlaukskrydd, paprika, chilli flögur, salt og pipar
  • Tagliatelle pasta
  • ~ 300 ml. rjómi
  • 2-3 matskeiðar af rjómaosti
  • 1 krukka af sólþurrkuðum tómötum
  • Parmesan
  • Mozzarella-perlur

Aðferð:

  • Byrjað er á að skera niður lauk og hvítlauk og steikja í pönnu þar til laukurinn er orðinn nokkuð vel mjúkur. Síðan er kjúklingurinn skorinn í bita, honum bætt á pönnuna, steiktur og kryddað vel. Þegar hann er tilbúinn er hann settur í skál og látinn bíða.
  • Sjóðið tagliatelle pastað eftir leiðbeiningum á pakkanum.
  • Setjið rjóma og rjómaost á sömu pönnu og var notað fyrir kjúklinginn og hrærið þar til að rjómaosturinn er bráðnaður. Skerið sólþurrkuðu tómatana í bita og bætið út á pönnuna ásamt nóg af parmesan osti. Bætið síðan pastanu og kjúklingnum á pönnuna og hrærið vel saman.
  • Ég mæli með því að bæta meiri parmesan osti yfir ásamt mozzarella-perlum og bera fram með fersku salati og hvítlauksbrauði.

Þá er bara ekkert eftir nema að njóta!


Ég ætla að tilnefna móður mína, hana Rakeli Magnúsdóttur sem næsta matgæðing vikunnar.

Nýjar fréttir