Hestamannafélagið Sleipnir kynnir með stolti sérstakt reiðnámskeið sem ætlað er börnum með hvers konar sér- og stuðningsþarfir. Námskeiðið er hluti af verkefni sem hlaut styrk úr Hvatasjóði HSK og er markmiðið að bjóða þessum börnum tækifæri til að njóta samveru með hestum og kynnast þeim.
Umsjónaraðili og leiðbeinandi er Elísabet Sveinsdóttir en hún hefur mikla reynslu að því að vinna með börnum með sérþarfir. Með henni verður Birna Káradóttir og saman leggja þær áherslu á fagmennsku, öryggi og einstaklingsmiðaða nálgun.
Kennslan mun fara fram á þriðjudögum í reiðhöll Sleipnis á Brávöllum Selfossi og samanstendur námskeiðið af fjórum skiptum. Fyrsti tíminn verður þriðjudaginn 17.mars. Kennslan fer fram í litlum hópum til að tryggja góða aðstoð en allt að fjórir þátttakendur eru í hvorum hópi. Annar hópurinn verður kl.14:30 og hinn 15:30
Ef þátttakandi þarfnast mikillar aðstoðar við að komast á bak er nauðsynlegt að aðstoðamaður sé honum innan handar á meðan kennslu stendur. Hannaður hefur verið hnakkur fyrir þau börn sem þurfa aukinn stuðning ásamt því að keyptur hefur verið sérstakur búnaður til að gera upplifun barnanna sem besta.
Búið er að opna fyrir skráningu í Abler og kostar námskeiðið 20.000 kr. og hægt er að nýta frístundastyrkinn til greiðslu.

