0 C
Selfoss

Opinn fundur á Selfossi um Evrópusambandið og landbúnað

Vinsælast

Sunnudaginn 15. mars klukkan 12:00 verður haldinn opinn fundur um ESB og íslenskan landbúnað í Tryggvaskála á Selfossi. Fundarboðandi eru samtökin Til vinstri við ESB sem stofnuð voru í ársbyrjun en markmið þeirra er það eitt að berjast gegn aðild Íslands að ESB.

Framsögumenn á fundinum eru Erna Bjarnadóttir hagfræðingur, Þorsteinn Ólafsson dýralæknir og Þorsteinn Bergsson rithöfundur og formaður Til vinstri við ESB. Fundarstjóri er Ögmundur Jónasson fyrrverandi ráðherra og alþingismaður.

Að loknum framsögum verða almennar umræður og fyrirspurnir en gert er ráð fyrir að fundinum ljúki um kl 13:30. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Í beinu framhaldi verður svo haldinn stofnfundur Suðurlandsdeildar samtakanna Til vinstri við ESB og eru allir vinstri menn sem vilja leggja málstaðnum lið hvattir til þátttöku.

Nýjar fréttir