Framboðið Betri sveit – fyrir okkur öll mun bjóða fram lista í komandi sveitarstjórnarkosningum í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Framboðið Betri sveit mun hafa það að markmiði að stjórnsýsla sveitarfélagsins verið opnari, stuðlað verði að sanngjörnum ákvörðunum sem byggja ætið á hagsmunum samfélagsins í heild. Lögð verður áhersla á skýrt utanumhald um framvindu verkefna og þeirra málefna sem sveitarfélagið stendur að eða stendur frammi fyrir.
Framboðið Betri sveit vill aukið samráð. Vilja íbúa má meðal annars kanna með ráðgefandi íbúakosningu. Markmiðið skal ætið vera að efla með markvissum hætti lýðræðisleg vinnubrögð í sveitarfélaginu, verja fé til framkvæmda eftir forgangsröðun íbúanna sjálfra og með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi.
Framboðið Betri sveit telur mikilvægt að mótuð verði framtíðarsýn fyrir sveitarfélagið sem verði leiðarljós að ákvarðanatöku kjörinna fulltrúa. Hornsteinn hvers samfélags er fólkið sem það byggir, það á að vera gott fyrir okkur öll að búa og dvelja í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Framboðið Betri sveit hefur kosið Andrés Bertelsen sem oddvita listans. Aðrir frambjóðendur verða kynntir á næstu vikum ásamt helstu stefnumálum framboðsins. Andrés Bertelsen er fæddur og uppalinn á Silfrastöðum í Skagafirði. Hann útskrifaðist með skipstjórnargráðu frá Tækniskólanum árið 2014. Starfsferill Andrésar spannar alþjóðlega markaðssetningu, fjölmiðlun og hönnun flókinna tæknikerfa. Hann býr að reynslu úr nýsköpunarfyrirtækjum sem og rótgrónum fyrirtækjum. Andrés starfar nú við hugbúnaðarþróun í alþjóðlegu nýsköpunarverkefni.
Á ferli sínum hefur Andrés tileinkað sér listina að umbreyta metnaðarfullum og framsýnum hugmyndum í áþreifanlegan árangur. Leiðtogastíll hans byggir á sköpunarkrafti og skipulagsfærni, sem tryggir að nýsköpun verði ekki aðeins hugmynd á blaði heldur að henni sé hrint í framkvæmd og hún fái að vaxa og dafna. Andrés leggur ríka áherslu á traust, samvinnu og gagnsæi í störfum sínum og hefur reynslu af því að leiða teymi fólks með ólíkan bakgrunn.
Andrés býr ásamt sambýliskonu sinni í Grímsnes- og Grafningshreppi. Tvö eldri börn þeirra eru uppkomin en tvö þau yngri stunda nám við Kerhólsskóla.
Nánari upplýsingar um framboðið, stefnu þess og markmið á finna á Facebook-síðunni Betri sveit – fyrir okkur öll.

