1.7 C
Selfoss

Nýr slökkviliðsbíll bætir öryggi

Vinsælast

Brunavarnir Rangárvallasýslu bs. fengu nýlega afhentan nýjan og glæsilegan slökkviliðsbíl. Bíllinn er gríðarlega vel tækjum búinn og eflir til muna öryggi okkar allra hvað varðar brunavarnir á svæðinu.

Brunavarnir Rangárvallsýslu eru í sameign Ásahrepps, Rangárþings ytra og Rangárþings eystra og sinna brunavörnum í allri sýslunni.

Bíllinn er allur hinn glæsilegasti og afar vel búinn. Mynd: ry.is.

Bíllinn er staðsettur í höfuðstöðvunum á Hellu og þann 11. febrúar var opið hús þar sem öllum bauðst að koma við og kíkja á bílinn. Boðið var upp á kökur og kaffi auk þess sem Bjössi brunabangsi kíkti í heimsókn við mikinn fögnuð yngri kynslóðarinnar.

Húsfyllir var á viðburðinum og þökkum við Leifi Bjarka Björnssyni slökkviliðsstjóra og félögum hans í slökkviliðinu kærlega fyrir heimboðið.

Rangárþing ytra

Bjössi brunabangsi vakti mikla lukku meðal barnanna sem hópuðust að honum til að fá knús. Mynd: ry.is.

Nýjar fréttir