Samfylkingarfélagið í Hveragerði hélt aðalfund mánudaginn 9. mars síðastliðinn í Glæsigerði, Hótel Örk. Á fundinum var Tómas Kristjánsson kosinn formaður félagsins. Aðrir í stjórn og varastjórn eru þau María Araceli, Guðmundur Benóný Baldvinsson, Davíð Michelsen, Þorsteinn Hjartarson, Elín Pálsdóttir, Birgitta Ragnarsdóttir. Á fundinum voru líflegar umræður um sveitarstjórnarkosningarnar í maí og framboðslisti (X-S) er tilbúinn og verður hann kynntur með tónlistar- og vöffluívafi í Leikhúsinu við Austurmörk nk. laugardag kl. 14:00. Allir eru velkomnir.

