Hr. Eydís hefur sent frá sér nýja ábreiðu af Against All Odds (Take a Look at Me Now), einum þekktasta kvikmyndasmell níunda áratugarins.
Lagið kom út árið 1984 og var samið og flutt af Phil Collins fyrir samnefnda kvikmynd. Það átti sér þó talsvert lengri sögu. Collins hafði samið grunninn nokkrum árum áður og kallaði það fyrst How Can You Just Sit There?, en honum fannst lagið ekki nógu sterkt fyrir fyrstu sólóplötuna sína, Face Value.
Þegar hann var síðar fenginn til að semja lag fyrir kvikmyndina Against All Odds dró hann gamla demóið fram aftur, samdi nýjan texta og úr varð einn stærsti sólósmellur ferilsins.
„Against All Odds er eitt af þessum lögum sem margir tengja eflaust við skólaböllin á níunda áratugnum og vangadansinn“ segir Örlygur Smári, söngvari og gítarleikari Hr. Eydísar. „Það var sko vangað við þetta, dramatíkin í botni og ástin logaði. Það er nákvæmlega það sem gerir svona lög svo skemmtileg að taka fyrir aftur“
Ábreiðan tengist haustinu hjá Hr. Eydís og Ernu Hrönn þar sem kvikmyndalög níunda áratugarins verða í aðalhlutverki.
Stærstu kvikmyndasmellir ’80s og eitt allsherjar partý frá byrjun til enda.
- 10. okt – Græni Hatturinn, Akureyri – ALVÖRU ’80s PARTÝ (Movie Hits)
• 17. okt – Sviðið, Selfossi – ALVÖRU ’80s PARTÝ (Movie Hits)
• 24. okt – Hlégarður, Mosfellsbæ – DANSLEIKUR/BALL
• 7. nóv – Háskólabíó, Reykjavík – ALVÖRU ’80s PARTÝ (Movie Hits)
Miðasala er í fullum gangi.
Sjá myndband:Against All Odds - Hr. Eydís


