-6.1 C
Selfoss

ML komst ekki í fjögurra liða úrslit

Vinsælast

Fyrstu útsendingunni af 8 liða úrslitum í Gettu betur var streymt í gærkvöldi. Menntaskólinn að Laugarvatni mætti þar Verzlunarskólanum. Verzlunarskólinn fór með sigur af bítum með 38 stig gegn 11 og er ML því úr leik og fer ekki áfram í fjögurra liða úrslit.

Þetta er í fyrsta sinn í rúm 30 ár sem Menntaskólinn að Laugarvatni kemst áfram í sjónvarpsviðureign. Lið ML skipuðu þau Þórey Kristín Rúnarsdóttir frá Selfossi, Stefán Gunngeir Stefánsson frá Ölfusi og Allan Holm Rúnarsson frá Hveragerði.

Fjölbrautaskóli Suðurlands mætir Fjölbrautaskóla Vesturlands í 8 liða úrslitum í Gettu betur, 19. mars næstkomandi.

Nýjar fréttir