2.3 C
Selfoss

Mikilvægt að skoðun ungmenna sé komið á framfæri

Vinsælast

Þann 4. febrúar sl. var fyrsta opnun Ungmennahúss í Bungubrekku, frístundamiðstöðvarinnar í Hveragerði.

Ungmennaráð Hveragerðis fékk í samráði við Bungubrekku að hýsa Ungmennahúsið. Starfsmenn Bungubrekku ásamt Ungmennaráði Hveragerðis tóku vel á móti ungmennum frá aldrinum 16-20 ára og var húsið vel sótt. Þá fá ungmenni nú tækifæri til að koma saman og nýta sér frístundaaðstöðuna sem Bungubrekka hefur upp á að bjóða.

„Okkur fannst vanta eitthvað fyrir framhaldsskólaaldurinn til að gera eftir skóla. Almennt séð er ekki mikið á dagskrá fyrir utan skóla fyrir ungmenni á þessum aldri,” segir Eyvindur Sveinn Lárusson, formaður ungmennaráðs Hveragerðis.

Áætlað er að halda ungmennahús á tveggja til þriggja vikna fresti til að byrja með til að meta mætingu og er markmið að fjölga samkomum með tímanum.

Eyvindur, sem setið hefur í ungmennaráði síðan í fyrrasumar, finnst mikilvægt að ungmenni fái að koma sínum skoðunum á framfæri til að efla samfélagið.
„Við erum búin að taka nokkra fundi með bæjarstjóra og erum búin að koma með nokkrar tillögur, eins og t.d. að lengja sundlaugaropnunina og fjölga ruslatunnum, sem er vonandi að fara í framkvæmd bara á næstunni,” segir Eyvindur.

„Ungmennahúsið er góður vettvangur þar sem ungt fólk getur komið á öruggan stað, hist og gert eitthvað skemmtilegt,“ segir hann að lokum.

SEG

Nýjar fréttir