Það er löng og gróin hefð fyrir miðvikudagsmessum í litlu svörtu kirkjunni að Mosfelli á föstutímanum. Í ár er engin undantekning á því og á þessari föstu er alla miðvikudaga kl. 19:30 boðið upp á messu með sérstöku íhugunarefni og endað með kirkjukaffi og samtali á prestsetrinu.
Öskudagurinn sjálfur markar upphaf föstunnar sem er tími iðrunar og það er tjáð með því að öskukross er teiknaður á enni með þessum orðum: “Minnstu þess maður að þú ert mold. Gjörðu iðrun og trúðu fagnaðarerindinu”.
Í messu Öskudagsins, sem í ár er 18. febrúar, þjónar sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir ásamt Guðmundi Brynjólfssyni djákna og rithöfundi. Innilega velkomin.

