2.8 C
Selfoss

„Má búast við að hlæja, gráta og svo hlæja aftur!“

Vinsælast

Leikfélag Selfoss hefur hafið sýningar á leiksýningunni Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson í leikstjórn Gunnars Inga Gunnsteinssonar í Litla leikhúsinu við Sigtún.

Skilaboðaskjóðan segir frá henni Möddumömmu og syni hennar, honum Putta litla, sem búa í Ævintýraskóginum þar sem öll ævintýrin gerast og dvergarnir sinna mikilvægum störfum. Putta dreymir um að verða ævintýraprins og hann langar að bjarga öllum frá nátttröllinu. Þegar Nátttröllið rænir Putta til að breyta honum í tröllastrák sameinast allir íbúar skógarins til að bjarga honum áður en sólin sest á bak við sólarlagsfjall. En þegar nornin, úlfurinn og stjúpan vilja ekki vera með þá eru góð ráð dýr.

Skilaboðaskjóðan er ævintýrasöngleikur byggður á samnefndri bók Þorvaldar sem kom út árið 1986 og naut mikilla vinsælda. Söngleikurinn var frumsýndur á stóra sviði Þjóðleikshússins árið 1993 í leikstjórn Kolbrúnar Halldórsdóttur og sló í gegn.

Sýningin var frumsýnd síðustu helgi, 27. febrúar, og var þétt setið, enda uppselt. Sýningin gekk afar vel og Jóhann G. Jóhannsson, tónlistarstjóri sem samdi tónlistina fyrir Skilaboðaskjóðuna, mætti og sá frumsýningu. Í lok sýningar fór Kjartan Björnsson með einlæga ræðu þar sem hann færði leikfélaginu þakklætisvott og hamingjuóskir frá samfélaginu í Sveitarfélaginu Árborg.

Ronja Lena Hafsteindóttir er 18 að verða 19 ára og stundar nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Ronja leikur eitt af aðalhlutverkunum, Möddumömmu, ljúfu saumakonuna í Ævintýraskóginum sem er líka mamma Putta litla.

„Æfingarnar hafa gengið mjög vel, þetta er alltaf mjög þreytandi og mjög erfitt ferli en kemur alltaf svo vel út. Á meðan maður er að æfa svona skemmtileg leikrit þá er maður líka að kynnast nýju og mjög skemmtilegu fólki,“ segir Ronja Lena Hafsteinsdóttir, en æfingar hófust 12. janúar sl.

Myndirnar tók Helga Guðrún Lárusdóttir.

Leikhópurinn samanstendur af sautján hæfileikaríkum leikurum á sviði, fögurra manna hljómsveit, ásamt fjöldanum öllum af einstaklingum sem vinna að leikritinu á bak við tjöldin.

Ronja segir leikhópinn afar þéttan og að vinskapurinn sé það sem skipti miklu máli baksviðs.
„Við erum mjög heppin með leikhóp, allir eru svo líflegir og skemmtilegir og það er mjög sjaldan dauð þögn baksviðs. Það eru allir svo duglegir að hjálpast að ef það vantar eitthvað, og mórallinn er bara svo geggjaður! Og fólkið baksviðs er búið að standa sig svo vel að setja upp svo frábæra og ævintýralega sviðsmynd, þau eru búin að vera að vinna alla daga og allar nætur í að hjálpa okkur að setja upp alveg klikkaðslega flott leikrit,“ segir Ronja.

Við hverju mega gestir búast við þegar þeir mæta á sýninguna?
„Þegar þið komið á sýninguna megið þið búast við að hlæja, svo gráta og svo hlæja aftur! Þið fáið líka að vera með okkur og hjálpa okkur að finna hann Putta litla. Þessi sýning er svo mikil upplifun og sjálf væri ég svo til í að sjá þessa sýningu sjálf!“ segir Ronja. „Það er svo rosalega spennandi og gaman að sjá allt fólkið í salnum upplifa Ævintýraskóginn með okkur,” bætir Ronja við.

Einstaklingar á öllum aldri eru hvattir til að mæta á Skilaboðaskjóðuna í Litla leikhúsinu við Sigtún. Hægt er að næla sér í miða á tix.is og verður leiksýningin sýnd næskomandi helgar í mars og apríl, oftast kl 13 eða 16.

SEG

Nýjar fréttir