Tónleikar verða haldnir í Selfosskirkju sunnudaginn 12. apríl kl.16:00 og í Safnaðarheimili Oddakirkju á Hellu sunnudaginn 19. apríl kl. 20:00.
Á fjölbreyttri efnisskrá verða ljóðasöngvar þar sem m.a. verða fluttar margar fegurstu perlur ljóðasöngsins , svo sem Linditréð og Ständchen eftir Schubert en einnig nýstárlegri ljóðasöngvar eftir Samuel Barber, Kurt Weill og Vaughan Williams. Einnig verða fluttir fallegir dúettar eftir Mendelssohn.
Sólrún Bragadóttir, sópran
Sólrún er fædd og uppalin í Reykjavík og hóf mjög snemma tónlistarnám sem barn. Eftir að hafa stundað tónlistarnám bæði í söng og píanóleik á Íslandi, fór Sólrún utan til Bandaríkjanna og lauk meistaragráðu í einsöng og söngkennslu frá tónlistarháskólanum í Bloomington í Indiana. Meðal kennara hennar þar var hin þekkta rúmenska söngkona, Virginia Zeani. Strax að námi loknu fékk hún fasta stöðu í Þýskalandi sem aðalsópran við leikhúsið í Kaiserslautern og síðar við óperuhúsið í Hannover. Í framhaldi af því hefur hún starfað og sungið mörg aðalhlutverk við helstu óperu- og leikhús í Þýskalandi t.d.í Düsseldorf, Gelsenkirchen, Bremen, Mannheim, München, Karlsruhe, Kiel, Kassel, Heidelberg og einnig víða annars staðar í Evrópu, USA og Japan, í Belfast, Avignon, Torino, Liége, Bern, Palm Beach, Tsuyama í Japan og víðar.
Sólrún hefur oft komið fram sem einsöngvari með hljómsveitum, hérlendis sem erlendis, tekið þátt í konsert uppfærslum á óperum, haldið fjölda ljóðatónleika hérlendis sem erlendis, sungið óratoríur og Vínartónlist ásamt því að þjálfa a cappella söng. Hún hefur einnig þróað sérstaka raddþjálfunar aðferð sem hún kallar Sálarflæðissöng.
Einar þór Guðmundsson, baritón
Einar ólst upp á Hellu og hóf þar píanónám 10 ára gamall hjá Guðjóni H. Óskarssyni. Hann hélt svo áfram námi við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Guðríði Sigurðardóttur og tók framhaldspróf í píanóleik 25 ára gamall. Þá skipti hann yfir í klassískan söng og stundaði söngnám hjá Þórunni Guðmundsdóttur. Þetta var afar ánægjulegur og árangursríkur tími, þar sem hann söng í óperum og óperettum og kláraði einnig framhaldspróf í söng aðeins tveimur árum síðar. 27 ára fór hann til Hollands , tók þar Bachelor próf í klassískri tónlist og söng og síðan Master í óperu, sviðslist og söng. Eftir smá hlé á ferlinum hefur hann ákveðið að snúa sér alfarið að söngnum á ný og flytur til Hollands í ágúst þar sem hann mun taka upp þráðinn við söngferilinn að nýju.
Anna Málfríður Sigurðardóttir, píanóleikari
Að loknu námi við Tónlistarskóla Ísafjarðar stundaði hún framhaldsnám við Guildhall School of Music and Drama, London og útskrifaðist þaðan sem einleikari og kennari árið 1971. Frekara nám í píanóleik nam hún hjá prófessor Brigitte Wild til ársins 1974. Síðan þá hefur Anna starfað sem píanókennari og píanóleikari, bæði á Íslandi og erlendis. Hún hefur einnig verið leiðbeinandi á námskeiðum í píanóleik. Anna Málfríður hefur haldið tónleika víðsvegar og komið fram sem einleikari, m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveitinni í Trier. Hún hefur einnig verið virk í kammermúsík og meðleik, þ.á. meðal haldið ljóðatónleika með Sólrúnu Bragadóttur söngkonu. Seinustu árin hefur hún búið á Stokkseyri.

