1.7 C
Selfoss

Kvenfélag Grímsneshrepps færir Móbergi lífsmarkamæli

Vinsælast

Kvenfélag Grímsneshrepps afhenti hjúkrunarheimilinu Móbergi á Selfossi nýverið lífsmarkamæli að gjöf til minningar um heiðursfélaga sinn, Þóru Magnúsdóttir, sem dvaldi á Móbergi um tíma.

Lífsmarkamælirinn mælir blóðþrýsting, púls, súrefnismettun og líkamshita og mun því nýtast afar vel í daglegu starfi heimilisins. Lífsmörk eru mæld að minnsta kosti mánaðarlega hjá hverjum heimilismanni og oftar hjá þeim sem þurfa á því að halda.

„Með tilkomu nýja tækisins verða mælingar áreiðanlegri og auðveldara verður að fylgjast með heilsufari og meta ástand skjólstæðinga á markvissan hátt,“ segir Ásta Tryggvadóttir deildarstjóri á Móbergi.

Gjafinn er dýrmætt framlag til starfseminnar og ber vitni um hlýhug og stuðning kvenfélagsins við heimilið og íbúa þess. Starfsfólk á Móbergi færir Kvenfélagi Grímsneshrepps kærar þakkir fyrir gjöfina og hlýjan hug í minningu Þóru Magnúsdóttur.

Nýjar fréttir