Mannamót Markaðsstofanna fóru fram í Kórnum í Kópavogi 15. janúar sl. og voru þau nú hin fjölmennustu síðan leikar hófust árið 2015. Að venju höfðu ferðaþjónustuaðilar af landsbyggðinni stillt upp fjölbreyttum kynningarbásum þar sem markmiðið var að gefa ferðaskrifstofum á höfuðborgarsvæðinu tækifæri til að kynna sér það sem landbyggðin býður upp á í afþreyingu, gistingu og mat.
Sunnlensk fyrirtæki voru í fararbroddi í ár, og voru þau 77 talsins af þeim 260 fyrirtækjum sem tóku þátt. Alls er gert ráð fyrir að á milli 17-1800 gestir hafi lagt leið sína í Kórinn þennan dag. Sá kraftur sem ríkir í sunnlenskri ferðaþjónustu endurspeglar mikilvægi greinarinnar í landshlutanum. Í nýlegri samantekt Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga kemur fram að Suðurlandið leiðir vöxt í heildaratvinnutekjum á landinu og þar spilar ferðaþjónustan veigamikið hlutverk.
Maður er manns gaman
Mannamót Markaðsstofa landshlutanna eru ekki aðeins ferðakaupstefna heldur er einnig markmið viðburðarins er að skapa samtal og tengsl milli fyrirtækja sem og að auka sýnileika landsbyggðarinnar í ferðaþjónustu á Íslandi. Eru sífellt fleiri fyrirtæki sem nýta sér viðburðinn til að gera sér dagamun og hitta kollega sína úr atvinnugreininni hvaðanæva af landinu. Er það mjög gleðilegt að sjá þar sem slík tengslamyndum, þar sem aðilar hafa tækifæri til að sýna sig og sjá aðra, er oft vandasöm í ferðaþjónustunni.
Þátttaka í Mannamótum er háð aðild í einni af Markaðsstofum landshlutanna og bætist því jafnan í hóp aðildarfélaga fyrir viðburðinn. Tekið er við öllum nýjum félögum fagnandi og hvattáhugasama til að setja sig í samband við Markaðsstofu Suðurlands.

