6.1 C
Selfoss

Jafningjastuðningshópur fyrir aðstandendur

Vinsælast

Krabbameinsfélag Árnessýslu hefur síðustu ár lagt áherslu á þjónustu í heimabyggð og stjórn félagsins lagt sig fram við að mæta þörfum krabbameinsgreindra einstaklinga og fjölskyldna þeirra eftir bestu getu.

Frá febrúar 2026 mun félagið bjóða upp á jafningjastuðningshóp fyrir aðstandendur krabbameinsgreindra og mun hópurinn hittast fyrsta þriðjudag hvers mánaðar kl.17:30 í húsnæði félagsins að Eyravegi 31.

Um tilraunaverkefni er að ræða og mun Svanhildur Ólafsdóttir, félagsráðgjafi-og fjölskyldufræðingur leiða hópinn fyrst um sinn.

Markmið með jafningjastuðningshópnum er að skapa vettvang fyrir maka og/eða fullorðna aðstandendur, til að ræða saman á tilfinningalegum nótum og þiggja stuðning hvert hjá öðru.

Er það von okkar í Krabbameinsfélagi Árnessýslu að með tilkomu hópsins sé aðstandendum mætt, til að ræða sína upplifun og líðan meðal jafningja.

Hlökkum til að hitta ykkur í dag, þriðjudaginn 3.febrúar kl. 17:30, Eyravegi 31 á Selfossi.

Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við félagið á netfangið arnessysla@krabb.is eða í síma 482 1022.

Nýjar fréttir