0.2 C
Selfoss

FSu úr leik eftir góðan árangur

Vinsælast

Fjölbrautaskóli Suðurlands er úr leik Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, en í gær mætti FSu, Menntaskólanum í Reykjavík, í undanúrslitum. FSu tryggði sér sæti í undanúrslitum í síðustu viku eftir glæsilegan sigur á móti Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í átta liða úrslitum.

MR hafði yfirhöndina alla keppnina og lauk leiknum með lokastigunum 36–25, sem tryggði MR sæti í úrslitum 10. apríl næstkomandi. Þar með er FSu úr leik, eftir góðan árangur í fyrri umferðum.

Lið FSu skipa þau Valgeir Gestur Eysteinsson, Hrafnhildur Svava Hemmert Sigurðardóttir og Hjálmar Vilhelm Rúnarsson.

Nýjar fréttir