Foreldrafélag Sunnulækjaskóla stendur nú fyrir nýjum viðburði þar sem foreldrum og forráðamönnum barna í Sunnulækjaskóla er boðið að hittast án barna, kynnast betur og efla tengsl sín á milli. Dagný Hróbjartsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir sitja báðar í stjórn foreldrafélagsins og eru meðal þeirra sem standa að viðburðinum.
Viðburðurinn verður haldinn næsta fimmtudag og að sögn Dagnýjar, sem er gjaldkeri félagsins og Guðmundu, sem er ritari félagsins, er tilgangur viðburðarins að fá foreldra til að hittast utan skóla án barnanna og tengjast, kynnast, styrkja böndin og hafa gaman saman.
Hugmyndin að viðburðinum segja Dagný og Guðmunda vera að fyrirmynd skandinavískra foreldrafélaga.
„Öðru hvoru hafa komið til okkar foreldrar barna í skólanum sem hafa búið í Skandinavíu og þekkja það að vera foreldrar barna í skólum þar. Þau hafa talað um það að sums staðar tíðkist það að foreldrar hittist barnlaus að kvöldi til þess að kynnast og efla tengslin. Við höfum alltaf verið spennt fyrir þessari hugmynd en þó hikandi þar sem ekki er menning fyrir þessu hér á landi. Núna eftir áramót ákváðum við þó að taka af skarið og prófa að halda slíkan viðburð,“ segja þær.
Sterk foreldrasamstaða skiptir máli
Foreldrasamstarf og samstarf heimilis og skóla eru mikilvæg.
„Það er mikil og sterk fylgni á milli góðra tengsla í foreldrahóp og forvarnagildis. Öflugir foreldrahópar sem þekkjast vel innbyrðis ná að leysa betur úr ágreiningsmálum sem geta komið upp, eiga auðveldara með að setja viðmið og reglur fyrir allan hópinn og búa til aldursviðeigandi „norm“ sem flest geta fylgt og eru sammála um,“ segja Dagný og Guðmunda.
Þær segja jafnframt að virkt foreldrasamstarf hafi jákvæð áhrif á nám og líðan barna. Þegar foreldrar eru samstíga í gildum, mörkum og daglegum venjum eins og svefni, næringu og skjátíma aukist líkur á vellíðan barna og þar með námsárangri.
„Það þarf að byggja góðan grunn svo að barni hafi sem besta möguleika á að líða vel og farnast vel í námi og samstaða í foreldrahópum gegnir þar veigamiklu hlutverki.“
Góð viðbrögð foreldra
Viðburðurinn hefur vakið mikla athygli og segja þær foreldra í Sunnulækjaskóla hafa sýnt afar jákvæð viðbrögð. Áhuginn sé mikill og margir hafi lýst ánægju með framtakið, þó að eftir eigi að koma í ljós hversu margir mæta á sjálfan viðburðinn. Ef vel tekst til er stefnt að því að gera viðburðinn að árlegum hlut og jafnvel þróa hann enn frekar.
Dagný og Guðmunda telja jafnframt að verkefnið gæti orðið foreldrafélögum í öðrum skólum fyrirmynd. „Það er óþarfi fyrir hvert félag að finna upp hjólið og við hvetjum þá sem sitja í stjórnum foreldrafélaga til að skoða hvað er í gangi hjá nærliggjandi félögum, hvort sem um er að ræða viðburði fyrir foreldra eða nemendur.“
Að lokum hvetja Dagný og Guðmunda alla foreldra barna í Sunnulækjarskóla til að mæta á Byrja á fimmtudaginn kl. 20 og taka þátt. Boðið verður upp á létta dagskrá, meðal annars Kahoot/pubquiz, en megináherslan er á að skapa notalegt andrúmsloft og hvetja fólk til að kynnast nýju fólki.
SEG

