5.6 C
Selfoss

Fjórir Sunnlendingar taka þátt í Öskubusku

Vinsælast

Fjórir Sunnlendingar stíga á svið í Tjarnarbíói næstu helgi en nemendur söngleikjadeildar Söngskólans í Reykjavík hafa unnið hörðum höndum að frumsýningu söngleiksins Öskubusku sem Sunnlendingurinn Eyvindur Erlendsson þýddi.

Sunnlendingar hópsins eru þau Hanna Tara Björnsdóttir frá Grásteini í Ölfusi, Sigurpáll Jónar Sigurðarson frá Hvolsvelli, Þrándur Ingvarsson frá Þrándarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Sigurður Matthías Sigurðarson úr Holtunum í Rangárþingi ytra. Öll eiga þau það sameiginlegt að vera á söngleikjadeild Söngskólans í Reykjavík, þar sem söngur, leiklist og sviðsframkoma fléttast saman í krefjandi en skemmtilegu námi.

Áhugi þeirra á tónlist og sviðslistum kviknaði snemma á ungum aldri hjá þeim öllum og löngunin til að syngja og leika á sviði hefur fylgt þeim lengi. Þau segja öll söngnámið afar gefandi og skemmtilegt en sömuleiðis krefjandi á tímum. „Við erum á fullu að setja upp sýninguna okkar, svo eru próf og tónleikar. Það er enginn tími í neitt annað,” segir Hanna.

Hanna Tara Björnsdóttir, Sunnlenskur nemandi við Söngskóla Reykjavíkur og leikur einnig Öskubusku sjálfa. Mynd: Aðsend.

Aðspurð hvað sé skemmtilegast við að standa á sviði nefna þau tengslin við áhorfendur, persónusköpunina og augnablikið þegar allt smellur saman.
„Mér finnst alltaf skemmtilegast að fá hlátur úr sal því þá er maður yfirleitt að gera eitthvað rétt,“ segir Þrándur.

Í Öskubusku fá þau svo að spreyta sig á fjölbreyttum hlutverkum. Hanna leikur sjálfa Öskubusku, Sigurpáll er prinsinn, Þrándur bregður sér í hlutverk kóngsins og Sigurður leikur bæði Lærisvein dísarinnar og Skógarvörð. Æfingar hófust fljótlega eftir áramót, í janúar, og síðan þá hefur hópurinn unnið þétt saman að því að skapa sína eigin útgáfu af þessari sígildu sögu.
„Þessi uppfærsla á eftir að koma ykkur á óvart. Öll vinnan sem allir eru að leggja í hana er stórkostleg. Þórunn Lárusdóttir leikstjóri er alveg að brillera!“

Æfingarnar hafa verið krefjandi, ekki síst vegna þess hversu mikið efni þarf að læra á stuttum tíma, en um leið hefur reynst ótrúlega skemmtilegt að prófa sig áfram, finna húmorinn í sögunni og sjá hvað virkar best á sviðinu. Þau segja að það sé mikið fjör og spennandi að upplifa augnablikin þegar frumsýning nálgast og allt smellir saman.

Að þeirra sögn verður uppfærslan litrík, fyndin og full af söng, húmor og ævintýrablæ. Hægt er að sækja miða á tix.is og þau hvetja Sunnlendinga eindregið til að leggja leið sína í Tjarnarbíó og njóta sýningarinnar. „Nælið ykkur hiklaust í miða á tix. Sérstaklega ef þið viljið ná barninu ykkar út úr ipadinum og gefa því almennilega afþreyingu.”

SEG

Nýjar fréttir