5 C
Selfoss

Ellý gefur kost á sér

Vinsælast

Frá árinu 2022 hef ég gegnt starfi bæjarfulltrúa og á þeim tíma öðlast mikla og dýrmæta reynslu. Starfið hefur verið lærdómsríkt og kennt mér mikilvægi samvinnu, opins samtals og lausnamiðaðra vinnubragða í þágu íbúanna. Ég trúi því að sterk samvinna og traust samskipti séu lykillinn að farsælli uppbyggingu og vil leggja áherslu á málefnaleg og uppbyggileg störf.

Ég hef búið í Árborg frá sumrinu 2014 og þekki því vel hvernig það er að koma ný inn í samfélag með lítið bakland og tengslanet. Á þeim tíma hefur Árborg vaxið og þróast gríðarlega og orðið að okkar heimili.

Öll börnin mín hafa verið í leik- og grunnskóla í Árborg og í dag á ég tvö börn í grunnskóla og eitt í framhaldsskóla. Þessi reynsla hefur veitt mér sterka tengingu við skóla-, íþrótta- og tómstundastarf í sveitarfélaginu. Ég hef séð hversu mikilvægt og öflugt þetta starf er fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur og hversu stóru hlutverki það gegnir í daglegu lífi samfélagsins. Ég vil leggja mitt af mörkum til að styðja við og efla þetta mikilvæga starf.

Ég brenn fyrir málefnum íbúanna og hef einlægan vilja til að leggja mitt á vogarskálarnar til að gera samfélagið okkar enn betra. Ég hef því ákveðið að gefa kost á mér í prófkjöri Framsóknarfélags Árborgar og sækist eftir 2. sæti á lista Framsóknar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Með því að gefa kost á mér að nýju vil ég halda áfram að vinna að öflugu og traustu sveitarfélagi þar sem tekið er vel utan um fólk á öllum stigum lífsins.

Rafrænt prófkjör fer fram um efstu sæti á lista Framsóknar í Árborg. Til að geta tekið þátt þarf að vera skráður í flokkinn, en slík skráning felur ekki í sér neina bindingu. Ég hvet þá sem vilja styðja mig til að skrá sig í Framsókn á heimasíðu flokksins:
https://framsokn.is/ganga-i-flokkinn/

Ég óska eftir þínum stuðningi í baráttunni framundan og hlakka til áframhaldandi samtals og samvinnu á komandi misserum.

Ellý Tómasdóttir
Bæjarfulltrúi Framsóknar í Árborg

Nýjar fréttir