Bragi Bjarnason bæjarstjóri leiðir áfram lista Sjálfstæðismanna í Árborg í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí nk. en nöfn sex efstu á listanum hafa nú verið birt.
Ákveðið var á fjölmennum fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Árborg að falla frá fyrirhuguðu prófkjöri og viðhafa uppstillingu. Á fundinum var einnig samþykkt einróma röðun efstu sex sætanna á listanum.
Nöfn sex efstu eru eftirfarandi:
- Bragi Bjarnason, bæjarstjóri.
- Sveinn Ægir Birgisson, formaður bæjarráðs.
- Linda Björk Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri.
- Brynhildur Jónsdóttir forstöðuþroskaþjálfi og bæjarfulltrúi.
- Þórhildur Ingvadóttir, móttökuritari.
- Kjartan Björnsson rakari og forseti bæjarstjórnar Árborgar.
„Það er ánægjulegt með hvernig til tókst við uppstillinguna þar sem eru í bland núverandi sveitarstjórnarmenn og nýliðar,” sagði Guðmundur Ármann Pétursson, formaður fulltrúaráðs, um málið.
Framundan er röðun sæta á listann til fulls og er búist við því að því verði lokið í næstu viku, en alls eru 22 fulltrúar sem sitja á framboðslistum í Sveitarfélaginu í Árborg.
„Þetta er ákaflega samstíga og öflugur hópur sem samanstendur af bæði reyndu fólki og nýju sem er reiðubúið til að halda áfram því góða starfi sem við í D-listanum höfum unnið hér á líðandi kjörtímabili,“ segir Bragi Bjarnason, oddviti listans.

