0.2 C
Selfoss

Bjarki mætir á Bjarkarból

Vinsælast

Frístundaheimilið Bjarkarból sem er nýjasta frístundaheimilið í Árborg og stendur við Stekkjaskóla stóð fyrir bangsahátíð sl. föstudag. Á frístundaheimilinu Bjarkarbóli eru 124 þátttakendur sem sækja störf þangað daglega á aldrinum 6-9 ára.

Þennan föstudag byrjaði bangsinn Bjarki á frístundaheimilinu.

Eitt af hlutverkum Bjarka verður að taka þátt í aðlögun barna á stórum tímamótum í lífi þeirra þegar þau fara úr leikskóla í grunnskóla. Hann mun taka virkan þátt í starfi frístundaheimilisins, veita börnunum stuðning í að mynda tengsl og eignast vini, vinna saman sem hópur,  vera jákvæðar fyrirmyndir og gefur börnunum knús ef þau þurfa á að halda.  Bjarki mun taka þátt í barnaráði ásamt börnum frístundaheimilisins. Dregið er í barnaráð hálfsmánaðarlega sem fundar í upphafi vikunnar, komast að sameiginlegri niðurstöðu um hvað eigi að borða í síðdegishressingu og hvaða þema verður hjá okkur á föstudegi þeirrar viku. Öll börn í Bjarkarbóli fá að sitja einu sinni hvern vetur í barnaráði.

Gildi frístundaheimilisins eru gleði, vinátta, samvinna og frelsi og mun Bjarki klárlega gera starfið innihaldsríkara þar sem hann er alltaf glaður, góður vinur og mikill talsmaður þess að börn hafi frelsi til að deila hugmyndum sínum.

Jafnframt hefur verið gefin út bók um líf Bjarka sem börnin geta skoðað til að fá innsýn inn í líf hans.

Bjarki verður sýnilegur í öllu starfi Bjarkarbóls og okkar trú er að hann eigi eftir að gera starf innihaldsríkara og stuðla að betri innleiðingu barna í framtíðinni.

Nýjar fréttir