6.7 C
Selfoss

Bachtónleikar í Skálholti

Vinsælast

Jón Bjarnason og Pétur Nói Stefánsson verða með Bach-tónleika í Skálholtsdómkirkju laugardaginn 21. mars kl. 17:00, á orgel og flygil í tilefni af fæðingardegi Bachs. Á þessum tónleikum verður einnig leikið á flygil, þótt slíkt hljóðfæri hafi ekki verið til á tímum Bachs.

Jón Bjarnason dómorganisti í Skálholti fæddist í Skagafirði 1979 þar sem hann hóf píanónám 7 ára gamall. Hann lauk 8. stigs prófi í píanóleik frá Tónlistarskóla Skagafjarðasýslu árið 1998. Jón útskrifaðist úr Tónlistarskólanum í Reykjavík með píanókennarapróf árið 2003. Hann útskrifaðist með Kantorspróf og einleiksáfanga frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar árið 2006. Veturinn 2011-2012 lauk hann diplómu í orgelleik frá Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn. Jón hefur starfað sem píanóleikari með Karlakór Selfoss frá árinu 2011.

Pétur Nói Stefánsson (f. 2003) hóf suzuki-píanónám 6 ára gamall við Tónlistarskóla Árnesinga hjá Ester Ólafsdóttur. Hann lauk framhaldsprófi í orgelleik vorið 2022. Árið 2023 lauk Pétur Nói kirkjuorganistaprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar og lauk kantorsprófi 2025 undir handleiðslu Björns Steinars Sólbergssonar. Nam hann einnig orgelleik hjá Kára Þormar og kórstjórn hjá Magnúsi Ragnarssyni. Hann hefur haldið orgeltónleika víðs vegar og einnig komið fram sem bæði einleikari og undirleikari. Undanfarin sumur starfaði hann sem bæjarlistamaður og hélt reglulega hádegistónleika í Hveragerðiskirkju. Pétur Nói var ráðinn organisti við Eyrarbakkakirkju árið 2023 en sl. haust tók hann við fjórum kirkjum í Flóanum.

Nýjar fréttir