2.3 C
Selfoss

Árni endurkjörinn formaður og Óttar kveður stjórn

Vinsælast

Árni Hrannar Arngrímsson var sjálfkjörinn áfram formaður Golfklúbbs Þorlákshafnar á tæplega fimmtíu manna aðalfundi félagsins, sem haldinn var í Versölum í Ráðhúsi Ölfuss þriðjudagskvöldið 27. janúar sl.

Varaformaðurinn Gyða Steina Þorsteinsdóttir var einnig endurkjörin, en breyting varð á stjórn þar sem Óskar Gíslason var kosinn í sæti Óttars Ingólfssonar, sem gaf ekki kost á sér áfram. Við þökkum Óttari fyrir störf hans og óskum honum velfarnaðar.

Tveir komu nýir inn í varastjórn, þeir Haraldur Guðmundsson og Snorri Jökull Egilsson.

Nýjar fréttir