Hvergerðingurinn Anna Guðrún Halldórsdóttir tryggði sér nýverið Evrópumeistaratitil í ólympískum lyftingum öldunga þegar hún sigraði í flokki W55 -86 kg á Evrópumeistaramótinu sem fram fór í Waregem í Belgíu dagana 19.–27. júní. Þetta er þriðji Evrópumeistaratitill hennar í röð.
Anna Guðrún lyfti 58 kílóum í snörun og 76 kílóum í jafnhendingu, samtals 134 kílóum, sem dugði til gullverðlauna. Auk þess hafnaði hún í glæsilegu 16. sæti af alls 417 konum sem luku keppni, óháð aldurs- og þyngdarflokkum.
„Mér líður bara rosalega vel eftir keppnina. Ég er mjög ánægð með að hafa náð að verja Evrópumeistaratitilinn þriðja árið í röð. Það er alltaf ákveðið stress þegar maður fer af stað í svona mót,“ segir Anna Guðrún í samtali við Dagskrána.
Fyrsti Evrópumeistaratitill hennar kom í Noregi fyrir þremur árum, sá næsti í Albaníu í fyrra og nú bættist Belgía í safnið.
Hitabylgja gerði keppnina erfiða
Að þessu sinni reyndi meira á en áður. Mikil hitabylgja gekk yfir Belgíu á meðan mótið stóð yfir og aðstæður í keppnishöllinni voru krefjandi.
„Það voru aðeins fleiri keppendur og ég var mjög stressuð núna fyrir mótið. Svo var svakalegur hiti sem gerði þetta rosalega erfitt. Það var hitabylgja þarna og það var náttúrulega engin loftræsting í íþróttahúsinu. Það var verið að líða yfir fólk sko,” segir Anna.
Margir keppendur breyttu áætlunum sínum vegna hitans og ákváðu að byrja á lægri þyngdum. Anna Guðrún ákvað hins vegar að halda sig við upphaflega keppnisáætlun.
„Ég hugsaði bara að ég ætlaði að halda mig við mitt plan, sem ég bara gerði. Ég breytti engu og það gekk sem betur fer upp.“

Æfir fimm sinnum í viku
Undirbúningurinn fyrir stórmót er markviss. Anna Guðrún æfir fjórum til fimm sinnum í viku undir leiðsögn Maríu Rúnar Þorsteinsdóttur hjá Hamarsport í Hveragerði.
„María er þjálfarinn minn í Hveragerði og vinkona og hún sér um að prógrammera fyrir mig. Og hún er bara búin að vera að þjálfa mig núna, örugglega komin fimm ár. Og hún kom mér í þetta og hafði mikla trú á mér og hefur ennþá trú á mér.“
„Svo má ekki gleyma stuðningsmanni nr. 1, eiginmanni mínum Gunnari Biering. Hann er umboðsmaðurinn minn og sér um þjálfun á mótum erlendis, án hans stuðnings gengi þetta ekki.“
Anna hefur alltaf verið mikil keppnismanneskja. Hún hefur þegar skrifað nafn sitt í sögubækur ólympískra lyftinga. Hún er handhafi sex Evrópumeta, þriggja í 86 kílóa flokki og þriggja í flokki 86 kílóum og ofar.
„Ég hef alltaf verið í íþróttum. Ég spilaði handbolta þegar ég var yngri og síðan tók CrossFit við. Ég er bara mikil keppnismanneskja og finnst gaman að keppa.“
Hún segir stressið yfirleitt gera vart við sig löngu áður en mótin hefjast.
„Ég er mest stressuð þrjár til fjórar vikur fyrir keppni. Svo þegar nær dregur róast ég og fæ sjálfstraust, því ég veit hvað ég get.“
Samhliða eigin æfingum er Anna Guðrún líka af og til að þjálfa hjá Hamarsport í Hveragerði.
„Ég þjálfa CrossFit-tíma og svo hef ég verið að þjálfa eldri borgarana, konu- og karlatíma og nú í sumar er krakkanámskeið í sumar og ég þjálfa þau líka“
Stefnir á heimmeistaratitilinn
Næsta stóra verkefni er heimsmeistaramótið sem fram fer í Aþenu í Grikklandi í september. Þar stefnir Anna Guðrún á að endurheimta heimsmeistaratitilinn.
„Ég varð heimsmeistari í Finnlandi fyrir tveimur árum en lenti í öðru sæti í Las Vegas í fyrra. Nú langar mig að ná titlinum aftur. Ég held að það sé vel gerlegt.“

