-0.5 C
Selfoss

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Hveragerðis

Vinsælast

Miðvikudaginn 18. mars fór fram aðalfundur Sjálfstæðisfélags Hveragerðis og mættu yfir 30 félagar á fundinn. Guðríður Aadnegard stjórnaði fundi og Sighvatur Fannar Nathanaelsson ritaði fundargerð.

Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf. Ingibjörg Zoëga, formaður félagsins, gerði grein fyrir störfum stjórnar og félagsins og Elín Engilbertsdóttir, gjaldkeri, gerði ársreikningi félagsins skil.

Ingibjörg Zoëga var endurkjörin formaður félagsins og aðrir í stjórn voru kjörin Elín Engilbertsdóttir, Geir Guðjónsson, Hanna Lovisa Olsen, Kristján Á. Gunnarsson, Lilja Björg Kjartansdóttir og Sighvatur Fannar Nathanaelsson. Í varastjórn voru kjörin Jón Aron Sigmundsson, Karitas Róbertsdóttir og Nína Margrét Pálmadóttir. Stjórn Sjálfstæðisfélags Hveragerðis var því óbreytt. Ásta Magnúsdóttir og Eyjólfur K. Kolbeins voru kjörin sem skoðunarmenn reikninga.

Sjálfstæðisfélagið í Hveragerði á 31 fulltrúa í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Árnessýslu sem voru kjörnir á fundinum og þá voru 10 fulltrúar kjörnir í kjördæmisráð. Einnig var kjörið í hússtjórn og blaðstjórn félagsins. Þá var tillaga stjórnar um óbreytt félagsgjald samþykkt.

Í lok fundar flutti Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins og oddviti hans í Suðurkjördæmi, ávarp og fór hún meðal annars yfir stöðuna á Alþingi, ESB málin, efnahagsástandið sem og þá vegferð sem framundan er í sveitarstjórnarkosningum en vel var mætt á fundinn af frambjóðendum nýbirts framboðslista D-listans í Hveragerði. Ingimar Guðmundsson, nýr oddviti D-listans, kvaddi sér einnig hljóðs og fór yfir stöðuna á framboðinu og þá vegferð sem framundan er hjá því og fjallaði hann einnig um mikilvægi starfsins hjá Sjálfstæðisfélagi Hveragerðis.

Nýjar fréttir