1.1 C
Selfoss

75 ára afmæli kvenfélags Hveragerðis

Vinsælast

Þann 11. mars síðastliðinn fagnaði Kvenfélag Hveragerðis 75 ára afmæli sínu með ljúfri stund í safnaðarheimili Hveragerðiskirkju en þar eru fundir félagsins haldnir annan miðvikudag í mánuði á starfstímabilinu október til maí. Kvenfélagið var stofnað 11. mars 1951. Frá upphafi hefur markmið félagsins verið að efla samstöðu kvenna og leggja sitt af mörkum til uppbyggingar samfélagsins í Hveragerði ásamt því að styðja sérstaklega við barna- og unglingastarf. Félagið hefur, eins og svo mörg kvenfélög á Íslandi, styrkt og verið með í að efla líknar- og hjálparstarf bæði í heimabænum og í sameiginlegum verkefnum með SSK sem eru samtök kvenfélaga á Suðurlandi. Undanfarin ár hefur fjölgað þeim konum sem kjósa að koma saman og hafa gaman og eru félagarnir nú á fimmta tug. Í gegnum árin hefur Kvenfélag Hveragerðis stutt fjölmörg verkefni í bænum. Til dæmis hefur félagið veitt styrki eða gjafir til: Leikskóla í bænum, heilsugæslunnar í Hveragerði, félags eldri borgara, björgunarsveitar, góðgerðarsjóða og annarra samfélagsverkefna. Starfið snýst ekki aðeins um styrktarverkefni heldur einnig um reglulega félagsfundi, fræðsluerindi, samveru og tengslamyndun.

Kvenfélagið hefur í gegnum áratugina verið vettvangur vináttu og samstöðu.

Nýjar fréttir