Framboðslisti T-listans í Bláskógabyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var samþykktur á fjölmennum fundi sem haldinn var í Efstadal í gærkvöldi. Á fundinum var tillaga uppstillinganefndar lögð fram og samþykkt samhljóða.
Á listanum er fólk með viðtæka reynslu, menntun og bakgrunn. Þá koma frambjóðendur víðsvegar að úr sveitarfélaginu og endurspegla því vel samfélagið í Bláskógabyggð.
Helgi Kjartansson, íþróttakennari og núverandi oddviti leiðir listann og í öðru sæti er Stefanía Hákonardóttir, verkfræðingur. Í þriðja sæti er Áslaug Alda Þórarinsdóttir, meistaranemi í félagsráðgjöf, í fjórða sæti er Ísak Eyfjörð Arnarson viðskiptafræðingur og fimmta sæti er Kristján Einir Traustason, viðskiptalögfræðingur.
Eftirfarandi einstaklingar skipa listann:
- Helgi Kjartansson, kennari og oddviti
- Stefanía Hákonardóttir, verkfræðingur
- Áslaug Alda Þórarinsdóttir, meistaranemi í félagsráðgjöf
- Ísak Eyfjörð Arnarson, viðskiptafræðingur
- Kristján Einir Traustason, viðskiptalögfræðingur
- Elías Bergmann Jóhannsson, kennaranemi
- Grímur Kristinsson, smiður og búfræðingur
- Anna Svava Sverrisdóttir, framkvæmdarstjóri
- Sveinn Ingi Sveinbjörnsson, vélvirki og bóndi
- Axel Sæland, blómabóndi
- Ewa Piatek, gróðurhúsastjóri
- Sindri Fannar Sigurbjörnsson, sjúkraflutningamaður
- Harpa Sævarsdóttir, sjúkraþjálfari
- Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir, bóndi

