Fjölmennur félagsfundur Samfylkingarinnar í Árborg samþykkti í gær einróma framboðslista Samfylkingar og óháðra vegna sveitastjórnarkosninganna þann 16. maí næstkomandi.
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi leiðir listann og í 2. sæti er Margrét Björk Ólafsdóttir hjúkrunastjóri. Brynjar Þór Elvarsson stjórnsýslufræðingur skipar 3. sæti listans, Elísabet Björgvinsdóttir skemmtanastjóri, samfélagsmiðlastjóri og þjálfari er í 4. sæti, Árni Magnússon verkefnastjóri skipar 5. sæti, Elísabet Davíðsdóttir lögfræðingur skipar 6. sæti listans og Margrét K. Sverrisdóttir íslenskufræðingur skipar 7. sætið.
Framboðslistann skipa reynslumiklir einstaklingar sem sitja í bæjarstjórn Árborgar auk nýrra frambjóðenda sem nú stíga sín fyrstu skref í sveitarstjórnarmálum, fullir áhuga á að gera gott sveitarfélag enn betra.
Í hópnum eru einstaklingar með víðtæka þekkingu og reynslu víðs vegar að úr samfélaginu og spegla vel þá miklu breidd sem býr í ört vaxandi samfélagi. Listinn mun á næstunni kynna stefnumál sín.
Listinn hefur á að skipa sterkum hópi fólks sem vill leggjast saman á árarnar við að létta daglegt líf fólks. Svf. Árborg á að vera samfélag þar sem þjónusta og bæjarbragur standi undir væntingum íbúa. Við viljum taka ábyrgð á að byggja upp sveitarfélagið með skýrri sýn og góðu samstarfi við íbúa. Markmið okkar er að taka á þeim verkefnum sem blasa við og byggja upp sterkt og lifandi samfélag.
Framboðslisti Samfylkingar og óháðra í Árborg 2026:
- Sigurjón Vídalín Guðmundsson, sérfræðingur hjá Vegagerðinni og bæjarfulltrúi.
- Margrét Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarstjóri.
- Brynjar Þór Elvarsson, stjórnsýslufræðingur.
- Elísabet Björgvinsdóttir, skemmtanastjóri, samfélagsmiðlastjóri og þjálfari.
- Árni Magnússon, verkefnastjóri.
- Elísabet Davíðsdóttir, lögfræðingur.
- Margrét K. Sverrisdóttir, íslenskufræðingur.
- Eva Gunnarsdóttir, skjalastjóri.
- Einar Sindri Ólafsson, jarðfræðingur
- Herdís Sif Ásmundsdóttir, kennari og hjúkrunarfræðingur.
- Linda Ásdísardóttir, sérfræðingur á Byggðasafni Árnesinga.
- Benoný Jónsson, líffræðingur, sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun og stöðvastjóri.
- Renuka Chareyre, starfsmaður í grunnskóla.
- Tinna Berg Rúnarsdóttir, leikskólakennari.
- Svala Norðdahl, lífskúnstner.
- Kristinn Hermannsson, rafvirki.
- Davíð Kristjánsson, vélvirki.
- Þorvarður Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóri SASS.
- Margrét Frímannsdóttir, fyrrverandi alþingiskona.
- Ástríður M. Sigurðardóttir, gæðastjóri.
- Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra.
- Arna Ír Gunnarsdóttir, verkefnastjóri og bæjarfulltrúi.
Mynd:
(Samfylkingin í Árborg 1-2)

