1.1 C
Selfoss

D-listi Sjálfstæðisfélagsins í Ölfusi samþykktur einróma

Vinsælast

Ölfus stendur á tímamótum. Sveitarfélagið hefur á undanförnum árum vaxið hratt, uppbygging hefur verið mikil og kröfur um öfluga innviði, trausta fjármálastjórn og öfluga grunnþjónustu hafa aukist. Árangur síðustu ára í Ölfusi undir forystu D-listans hefur vakið eftirtekt á landsvísu og er ljóst að næsta kjörtímabil undir sterkri forystu D-listans tryggir áframhaldandi vöxt af ábyrgð, festu og framsýn.

Það er í þessu samhengi sem félagar Sjálfstæðisfélagsins í Ölfusi komu saman til fjölmenns fundar fyrr í kvöld. Þar var framboðslisti félagsins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar samþykktur einróma, sem skýr staðfesting á samstöðu, trausti og sameiginlegri sýn.

Áhugi íbúa á störfum D-listans hefur aldrei verið meiri. D-listinn býr yfir fjölda frambærilegra einstaklinga og endurspeglast sá mannauður í framboðslistanum. Listinn sem borinn var upp til samþykktar sameinar reynslu og endurnýjun. Í efstu sætum eru leiðtogar með víðtæka stjórnsýslureynslu og djúpa þekkingu á rekstri sveitarfélagsins, ásamt öflugu fólki úr atvinnulífi, menntakerfi, heilbrigðisþjónustu, iðnaði og fl. Þessi breidd endurspeglar samfélagið sjálft, fólk sem þekkir þarfir íbúa af eigin raun og vill leggja sitt af mörkum til áframhaldandi framfara.

Við ætlum að leiða Ölfus inn í næsta vaxtarskeið með áherslu á velferð þeirra sem hér búa. Það gerum við með ábyrgri fjármálastjórn, markvissri uppbyggingu innviða og skýrri forgangsröðun í þágu íbúa,“ segir Grétar Ingi Erlendsson sem leiðir D-listann. „Einróma samþykkt listans í kvöld sýnir að við stöndum þétt saman og erum tilbúin í verkefnið.“

D-listinn leggur áherslu á áframhaldandi uppbyggingu. Markmiðið er skýrt: að tryggja að Ölfus haldi áfram að vera eftirsóknarvert sveitarfélag þar sem gott er að búa, starfa og ala upp fjölskyldu.

Með einróma samþykkt listans í kvöld er lagður sterkur grunnur að öflugri kosningabaráttu þar sem framtíðarsýn, reynsla og ábyrgð fara saman.

D – listinn Sjálfstæðismanna er sem hér segir:

  1. Grétar Ingi Erlendsson – formaður bæjarráðs og sölu- og markaðsfulltrúi
  2. Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir – Bæjarfulltrúi, bóndi og viðskiptafræðingur
  3. Gestur Þór Kristjánsson – forseti bæjarstjórnar, húsasmíðameistari
  4. Erla Sif Markúsdóttir – Bæjarfulltrúi, deildarstjóri í Grunnskólanum í Þorlákshöfn
  5. Guðlaug Einarsdóttir – deildarstjóri í Grunnskólanum í Þorlákshöfn
  6. Geir Höskuldsson – byggingaiðnfræðingur
  7. Bettý Grímsdóttir – hjúkrunarfræðingur
  8. Davíð Arnar Ágústsson – kóngur, þjálfari og körfuknattleiksmaður
  9. Ingunn Guðnadóttir – læknanemi
  10. Oskar Rybinski – rafvirki og ljósahönnuður
  11. Ólöf Ingibergsdóttir – atvinnurekandi
  12. Böðvar Guðbjörn Jónsson – fagstjóri gagnaþróunar
  13. Sævar Elí Kjartansson – smiður og þjálfari
  14. Ásta Júlía Jónsdóttir – Fv. kennari

Fréttatilkynning frá D-listanum í Ölfusi

Nýjar fréttir