-0.4 C
Selfoss

Bergþóra býður sig fram til formanns VLFS 

Vinsælast

Bergþóra Eiðsdóttir hefur tilkynnt að hún gefi kost á sér til formanns Verkalýðsfélags Suðurlands, en stjórnarkjör hjá félaginu fara fram á vormánuðum. Hún hefur starfað hjá félaginu frá október 2024. Bergþóra býður sig fram gegn sitjandi formanni, Guðrúnu Elínu Pálsdóttur, sem hefur starfað hjá félaginu frá árinu 2002.

Þetta verða fyrstu stjórnarkosningar í sögu Verkalýðsfélags Suðurlands, en hingað til hafa listar uppstillingarnefndar verið sjálfkjörnir. Á næstu vikum mun Bergþóra halda fundi með félagsmönnum víðs vegar um félagssvæðið og kynna meðframbjóðendur til stjórnar.

Í tilkynningu frá framboðinu kemur fram að Bergþóra sé spennt fyrir komandi kosningabaráttu og hlakki til að bjóða félagsmönnum upp á raunverulegt val um forystu í fyrsta sinn í sögu félagsins. Hún leggur sérstaka áherslu á að félagið verði enn sterkara, aðgengilegra og nær félagsmönnum sínum, með skýra þjónustu, gagnsæi og virkt samtal.

Hún vill m.a.:

  • Auka aðgengi að þjónustu félagsins og tryggja að heimasíðan og „Mínar síður“ séu aðgengilegar á helstu tungumálum félagsmanna.
  • Ráða kjaramálafulltrúa sem talar íslensku, ensku og pólsku til að tryggja raunverulega þjónustu við alla félagsmenn.
  • Bæta orlofskerfi félagsins með einfaldari lyklaafhendingu, uppfærslu og viðhaldi svo félagsmenn njóti eigna sinna til fulls.
  • Nálgast samstarf við atvinnurekendur af festu en útsjónarsemi.
  • Leita leiða til að hjálpa félagsmönnum að komast úr leigu í eigið húsnæði.
  • Viðhalda gagnsæi með því að birta ársskýrslu félagsins á heimasíðu og skýrri upplýsingagjöf um fjármuni félagsins.
  • Sjá til þess að þjónusta sé aðgengileg félagsmönnum á öllu félagssvæðinu.
  • Tryggja að félagsmenn fái snögg svör við fyrirspurnum, innan sólarhrings. Bergþóra leggur áherslu á að félagsmenn eigi lokaorðið í öllum mikilvægustu ákvörðunum, þar á meðal hugsanlegum sameiningum við önnur stéttarfélög og fjárfestingum, og að félagið starfi fyrst og fremst fyrir þá félagsmenn sem því tilheyra.

Nýjar fréttir