Elín Jóhannesdóttir er matgæðingur vikunnar.
Takk fyrir áskorunina mín kæra mágkona, Bryndís.
Ég ætla að deila með ykkur uppáhalds fiskréttinum mínum um þessar mundir. Þægileg eldamennska fyrir stærri boð eða bara heima með fjölskyldunni.
Ómissandi í boðið er svo merengs-terta sem slær alltaf í gegn.
Verði ykkur að góðu!
Saltfiskréttur með sætkartöflumús
–Léttsaltaður þorskhnakki
-Olía
-Capers
-Olivur
-Sólþurrkaðir tómatar
-200 gr. smjör
-3 stk. hvítlauksrif
-Salt og pipar
Sætkartöflumús
-Sætar kartöflur
-Smá sletta af rjóma
-100 gr smjör
-2 stk. hvítlauksrif
-Salt og pipar
Aðferð:
Sjóðið sætar kartöflur, skerið hvítlauk niður og steikið upp úr smjöri. Setjið saman í skál og stappið, bætið við smá rjóma og salti og pipar.
Kartöflumúsin er sett í eldfast mót.
Létt steikjið fisk á pönnu með olíu og salti og pipar, setja yfir músina. Hella capers, olivum og sólþurrkuðum tómötum yfir. Brúna 200 gr. af smjöri með söxuðum hvítlauk og hella yfir réttinn.
Bakið í 180°C heitum ofni í 15 mín. Steinselja og graslaukur sett yfir og borið fram með góðu brauði.
Marengs-terta
-200 gr. sykur
-3 eggjahvítur
-1 tsk. lyftiduft
-2 bollar rice crispy
Stífþeyta eggjahvítur og sykur saman, bæta lyftidufti við og í lokin rice crispy blandað við með sleif.
150°C (blástur) í 45 mín, slökkva á ofni og leyfa botnum að kólna yfir nótt.
Rjómi með rólobitum á milli, toppuð t.d. með karmellukremi, berjum og kókosbollubitum.
Ég skora á Ástrós Rún vinkonu mína að vera næsti matgæðingur vikunnar, maður fær alltaf góðan mat hjá henni

