0.6 C
Selfoss

Laxaréttur með núðlum

Vinsælast

Bryndís Áskelsdóttir er matgæðingur vikunnar.

Takk fyrir áskorunina kæra frænka og vinkona Birna Gestsdóttir. Þennan laxarétt fann ég á netinu einhverntímann fyrir löngu og hefur hann verið í uppáhaldi hjá mér síðan.

Hráefni

Laxaflök ca 6-800g

eggjanúðlur 250g

1-2 msk sojasósa

1,5 dl sweet chilisósa

1 rauð paprika skorin smátt

1 búnt vorlaukur skorinn í sneiðar

2 dl kasjúhnetur

Aðferð

Laxaflök sett á ofnskúffu klædda smjörpappír.

Sojasósa sett yfir flökin og bakað í ofni við 180gr. í 15 mín.

Sjóðið núðlurnar.

Setjið sweetchilli sósu og sojasósu á pönnu, blandið vorlauk, papriku og kasjuhnetur

blandið saman við og steikið.

Núðlurnar eru svo settar saman við.

Gott og fallegt að strá fersku kóriander yfir réttinn áður en borið er fram, einnig er gott að kreista Lime yfir réttinn. Hvítlauksbrauð er nauðsynlegt með.

Verði ykkur að góðu.


Langar mig að skora á mágkonu mína Elínu Eir Jóhannesdóttur að koma með uppskrift í næstu viku, ég veit hún lumar á mörgu góðu.

Nýjar fréttir