Matgæðingur vikunnar er Elín Karol Guðmundsdóttir.
Takk María mín fyrir áskorunina.Það er alltaf svo gaman þegar við hittumst og borðum saman.
Ég ætla að deila með ykkur uppskrift að djúsí kjötbollum sem eru uppáhalds kjötbollurnar okkar. Ég man ekki alveg hvar ég fékk þessa uppskrift en góð er hún.
Kjötbollur með piparosti
500 gr. nautahakk
1/2 pakki Ritz kex
1 egg
1/2 piparostur
1-2 hvítlauksgeirar
1/4 rauðlaukur
Saxið laukinn og hvítlaukinn mjög fínt og blandið öllu saman. Gerið bollur. Gott er að geyma bollurnar í 1-2 tíma í ískáp áður en þið steikið þær, þá verða þær bragðmeiri en það er ekki nauðsynlegt
Steikið bollurnar og setjið í eldfast mót.
Sósan
200 ml. rjómi
200 ml. vatn
1 stk. nautakraftur
1 msk. sveppaostur
1 dl. rifinn piparostur
Hitið ostana í rjómablöndunni þar til piparosturinn er alveg bráðinn og hellið svo sósunni yfir bollurnar. Bakið í ofni í ca 20 mín. við 180 gráður.
Gott er að bera fram með ofnbökuðum sætum karteflum með fetaosti og fersku salati.
Ég ætla að skora á Kristinn Ágúst „Kidda“ mág minn að koma með næstu uppskrift.


