0 C
Selfoss

Chorizo pasta

Vinsælast

Sunnlenski matgæðingur vikunnar er Kristinn Eggertsson.

Ég þakka Elínu fyrir áskorunina. Það er nánast fitandi að búa nálægt þeim hjónum, Elínu og Andý, þau eru frábærir kokkar og eru dugleg að bjóða í mat.

Mig langar að deila með ykkur uppskrift sem ég bjó til fyrir 2 árum síðan og þykir mjög góð. Ég gleymdi að skrifa hana niður á sínum tíma og það tók nokkrar tilraunir að endurgera hana.

Chorizo pasta

Uppskrift fyrir ca. 2 fullorðna. 

  • 70 g smjör
  • 2 msk. ólífuolía
  • 5 meðalstórir flúðasveppir
  • 90 g Chorizo Iberico
  • 2 litlir skalottlaukar
  • 1 til 1 og 1/2 dl hvítvín
  • 2 msk. hveiti
  • 250 ml rjómi
  • 30 g rifinn parmesan
  • 1 nautateningur
  • 200 g af einhverju góðu, fylltu pasta (tortellini eða ravioli). Ég kaupi helst ferskt pasta í þennan rétt.

Skerið sveppina í tvennt og svo í sneiðar. (Ég hef aldrei á ævinni þvegið Flúðasvepp, en þið megið það alveg.)

Skerið chorizo í c.a. 2 mm þykkar sneiðar.

Saxið skalottlaukinn frekar smátt. Steikið sveppina upp úr helmingnum af smjörinu og olíunni þangað til að þeir verða brúnir og mjúkir. Setjið þá í skál, ásamt vökvanum af pönnunni. Steikið chorizo þar til það verður dökkrautt og flott. Setjið það ásamt vökvanum (fitunni) út í skálina með sveppunum. Næst setjið þið restina af smjörinu og olíunni á pönnuna og svitið skalottlaukinn á henni. Þegar hann er orðinn mjúkur og nánast gegnsær, þá er hveitinu bætt við. Lækkið hitann og gerið smjörbollu úr hveitinu, smjörinu og lauknum. Bætið því næst hvítvíninu út í og hrærið vel. (Ég nota áfengislaust hvítvín). Því næst fer 1/3 af rjómanum út í ásamt nautateningi. Látið þetta malla aðeins áður en rifna parmesanostinum er bætt út í, látin bráðna í og fylgt á eftir með restinni af rjómanum. Síðan er sveppum og chorizo (ásamt vökva) bætt út í.

Pastað soðið eftir leiðbeiningum og síðan sett út í sósuna.

Borið fram með góðu hvítlauksbrauði og meiri parmesan.


Ég skora á tengdadóttur mína, hana Julitu Irenu, að koma með einhverja flotta uppskrift í næsta blað.

Nýjar fréttir