-3.9 C
Selfoss

Kósýpeysa Sigrúnar

Vinsælast

Stærðir:
XS – S – M – L – XL – XXL

Yfirvídd:
112 – 115 – 120 – 124 – 130 – 133 cm

Í uppskriftinni eru gefnir upp sentimertar í sídd á bol og ermum, en eins og við vitum erum við mismunandi og því gott að taka mál af eiganda áður en hafist er handa.

Garn:
Cielo frá Holst fæst hjá bobby.is Hveragerði. Garnmagn:

XS – S – M – L – XL – XXL
450 gr – 450 gr – 500 gr – 550 gr – 600 gr

Það sem þarf:
Hringprjónar 6 mm og 8 mm 40 og 80 cm langir
Prjónamerki 5 stk. og stoppunál

Tækni:
Peysan er prjónuð frá hálsmáli og niður, aukið er út við laskalykkjur sem eru 4, og aukið er út til hægri og vinstri, sitt hvoru megin við laskalykkjuna samtals 8 lykkjur í umferð, þetta er gert í annari hvorri umferð, hin umferðin er prjónuð slétt án útaukninga.

Stroff neðan á peysu er prjónað í tvennu lagi, (fram og afturstykki) það þarf að færa upphaf umferðar í hliðina áður en byrjað er á stroffi.

Útaukning til hægri og vinstri
Hægri: Lyftir þverbandinu með vinstri prjón aftan frá og prjónar slétt í fremra bandið.
Vinstri: Lyftið upp þverbandinu með vinstri prjón og prjónið slétt aftan í bandið.

Uppskrift:

Fitjið upp á hringprjón 6 mm, 40 cm. 60 – 60 – 64 – 64 – 68 – 68 lykkjur

Tengið í hring og prjónið stroff, 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðin út umferð, setjið prjónamerki á milli fyrstu og síðustu lykkju. (upphaf umferðar).

Prjónið stroffið ca 4 cm Það má vera lengra ef vilji er fyrir að hafa háann kraga.

Þegar stroffi lýkur er skipt um prjón og prjónað með 8 mm 40 cm prjón um leið og prjónamerki eru sett við laskalykkjurnar:

1. Prjónið 12 – 12 – 13 – 13 – 14 – 14 lykkjur (hálft bak), setjið prjónamerki í næstu lykkju (fyrsta laskalykkja).

2. Prjónið 5 – 5 – 5 – 5 – 5 – 5 lykkjur,(axlarstykki), setjið prjónamerki í næstu lykkju (önnur laskalykkja).

3. Prjónið 25 – 25 – 27 – 27 – 29 – 29 lykkjur (framstykki), setjið prjónamerki í næstu lykkju (þriðja laskalykkja).

4. Prjónið 5 – 5 – 5 – 5 – 5 – 5 lykkjur (axlastykki) setjið prjónamerki í næstu lykkju (fjórða laskalykkja).

Prjónið 13 – 13 – 14 – 14 – 15 – 15 síðustu lykkjurnar (hinn helmingurinn á bakstykki). ATH. Prjónamerkin eru sett í sjálfa laskalykkjuna!

Í næstu umferð (umferð nr. 1) er byrjað að auka út við laskalykkjurnar, svona:

1. Prjónið að fyrstu laskalykkju.

Útaukning til hægri: Lyftið þverbandinu með vinstri prjón aftan frá og prjónið slétt í fremra í bandið, prjónið laskalykkjuna.

Útaukning til vinstri: Lyftið upp þverbandinu framan frá með vinstri pjrón og prjónið slétt aftan í bandið, prjónið axlastykki að næstu laskalykkju.

2. Útaukning til hægri: Lyftið þverbandinu með vinstri prjón aftan frá og prjónið slétt í fremra bandið, prjónið laskalykkjuna.

Útaukning til vinstri: Lyftið upp þverbandinu framan frá með vinstri prjón og prjónið slétt aftan í bandið, prjónið axlastykki að næstu laskalykkj.

3. Útaukning til hægri: Lyftið þverbandinu með vinstri prjón aftan frá og prjónið slétt í fremra í bandið, prjónið laskalykkjuna.

Útaukning til vinstri: Lyftið upp þverbandinu framan frá með vinstri pjrón og prjónið slétt aftan í bandið, prjónið axlastykki að næstu laskalykkju.

4. Útaukning til hægri: Lyftið þverbandinu með vinstri prjón aftan frá og prjónið slétt í fremra í bandið, prjónið laskalykkjuna.

Útaukning til vinstri: Lyftið upp þverbandinu framan frá með vinstri pjrón og prjónið slétt aftan í bandið, prjónið axlastykki að næstu laskalykkju.

Umferð 2. Er prjónuð slétt, án útaukningar.

Endurtakið umferð 1 og 2 þar til útaukningu er náð.

Umferðir 1 og 2 eru gerðar samtals: 22 – 23 – 24 – 25 – 26 – 27 .

Þegar útaukningarumferðum er lokið eru á prjóninum, 236 – 244 – 256 – 264 – 276 – 284 lykkjur á prjóninum.

Prjónið 2 – 4 umferðir án útaukningar, skiptið upp ermum og bol, svona:

Prjónið hálft bak og laskalykkju, setjið ermalykkjurnar á band/snúru 49 – 51 – 53 – 55 – 57 – 59 lykkjur, búið til 8 – 8 – 10 – 10 – 10 – 10 lykkjur undir ermi, prjónið laskalykkju, framstykki og

laskalykkju, setjið næstu 49 – 51 – 54 – 56 – 59 – 61 lykkjur á band/snúru, búið til 10 – 10 – 10 – 10 – 10 – 10 lykkjur undir ermi, prjónið laskalykkju og hálft bak.

Á bol eiga að vera 158 – 162 – 170 – 174 – 182 – 186 lykkjur.

Prjónið bol þar til hann mælist ca 24 – 25 – 27 – 28 – 29 – 30 cm, eða sú lengd sem passar eiganda.

Stroffið er prjónað fram og til baka, ein lykkja slétt og ein brugðin, á prjóna 6 mm, framstykkið er ca 4 – 6 cm.

ATH! framstykkið er styttra en bakstykkið, sem yrði þá ca 6 – 8 cm, hér má leika sér að síddinni á stroffinu, það þarf ekki að vera svona breitt, má vera styttra, eða síðara.

Ermar

Takið upp 5 – 5 – 5 – 5 – 5 – 5 fyrstu lykkjurnar sem voru búnar til undir ermi, setjið ermalykkjurnar 49 – 51 – 53 – 55 – 57 – 59 og restina af lykkjunum sem voru búnar til undir erminni, með 8 mm 40 cm prjón, setjið prjónamerki, umferð byrjar undir miðri ermi.

Ekki er gert ráð fyrir að fækka lykkjum niður ermina, en það má alveg gera það.

Prjónið ermi þar til hún mælist ca 35 – 36 – 37 – 38 – 39 – 40 cm eða sú lengd sem hentar eiganda, prjónið stroff ca 4 cm, fellið af.

Frágangur

Gangið vel frá öllum endum.

Þvottaleiðbeiningar

Þvoið í höndum með köldu vatni, kreistið vatnið ur, fínt að setja í þvottavél og vinda á vægri vindu í ca 1 – 2 mín, leggið til þerris á handklæði.

Okkur þætti vænt um að ef þú setur þetta á samfélagsmiðla að merkja okkur í póstinum @bobbyjardaetur.

Ef aðstoðar er þörf hafið samband við okkur í tölvupósti info@bobby.is.

Uppskrift:
Bobbýjardætur
Breiðumörk 13, Hveragerði – Sími 774 2324
info@bobby.is – www.bobby.is

Nýjar fréttir