9.5 C
Selfoss
Home Fréttir Líkfundur við Sandfell í Öræfum

Líkfundur við Sandfell í Öræfum

0
Líkfundur við Sandfell í Öræfum

Björgunarsveitarmenn í Öræfum fundu, um hádegisbil, látinn mann við Sandfell í Öræfum. Björgunarsveitir voru kallaðar til þegar farið var að grenslast fyrir um ástæður þess að bifreið hafði staðið mannlaus í einhvern ótiltekin tíma á bifreiðastæði skammt frá Sandfelli. Um er að ræða bílaleigubifreið í útleigu til erlends ferðamanns. Málið er í rannsókn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi.

Á heimasíðu lögreglunnar kemur fram að ekki sé unnt að veita nánari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Frétt af facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.